Fréttir

Opið hús

Í stað þess að koma saman í Neskirkju eins og venja er á miðvikudögum hittast gestir Opins húss í kaffistofu Þjóðminjasafnsins kl. 15 n.k. miðvikudag, 12. desember, og hlýða síðan á Pétur Pétursson prófessor fjalla um Völuspá og býsanskar dómsdagsmyndir og mikilvægi þeirra fyrir kristniboð um árið 1000. Um þær mundir er talið að Völuspá [...]

By |2007-12-10T21:43:28+00:0010. desember 2007 21:43|

Myndir á aðventu

Á undan jólaboðskap hljóma orð um raunveruleika heimsins, en svo líka um hvað verður til lausnar. Engin billeg svör eru í alþjóðamálum, lífið er flókið og stundum sorglegt. En á vonartíð aðventunnar eru okkur tjáð að þvert á vonsku vill Guð hið góða. Prédikun sr. Sigurðar Árna 9. desember er á bak við þessa smellu.

By |2007-12-09T21:39:21+00:009. desember 2007 21:39|

Tvö kerti á kransi

Á öðrum sunnudegi í aðventu kveikja börnin á tveimur kertum á aðventukransinum. Messuhópur þjónar í athöfninni sem hefst kl. 11. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Félagar úr Kór Neskirkju stýra söng. Kór Orkuveitunnar syngur í athöfninni. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Matarhópur sér um hádegisverð eftir messu. […]

By |2007-12-08T13:12:55+00:008. desember 2007 13:12|

Stórtónleikar á afmælisári

Lokatónleikar hátíðarinnar „Tónað inn í aðventu“ verða fimmtudagskvöldið 6. desember klukkan 20:00 en þar mun Kór Neskirkju ásamt fjórum einsöngvurum og hljómsveit frumflytja á Íslandi óratoríuna „L’Allegro, il Penseroso ed il Moderato“ eftir meistara G. F. Händel Óratóríuna samdi hann einu ári áður en meistaraverkið „Messías“. Miðaverð 2.500 kr. við innganginn og 2.000 kr. í [...]

By |2007-12-06T12:56:39+00:006. desember 2007 12:56|

Ekkert gjald – bara nánd

Ekkert gjald meðan beðið er hjá símanum og ekki heldur í kirkjunni! Kirkjan er ekki aðeins opin á sunnudögum heldur líka hvunndags. Fyrirbænamessa er í Neskirkju í hádeginu á miðvikudögum, kl. 12,15. Þú og fyrirbænaefni þín eru velkomin. […]

By |2007-12-04T20:34:01+00:004. desember 2007 20:34|

Höldum hátíð!

Fjölskyldumessa í Neskirkju 2. des. kl. 11 sem er 1. sunnudagur í aðventu og nýársdagur kirkjunnar. Höldum því hátíð! Barnakórar syngja, ungt fólk kynnir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, messuhópur aðstoðar við bænagjörð og útdeilingu sakramentis. Sr. Örn Bárður prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin verða með í messunni allan tímann og ganga til altaris með foreldrum [...]

By |2007-11-30T11:57:06+00:0030. nóvember 2007 11:57|

Org

Sunnudagur 2. desember kl. 17:00 verður Steingrímur Þórhallsson organisti við Neskirkju með sína árlegu orgeltónleika undir yfirskriftinni "Org" en þar mun hið mikla hljóðfæri Neskirkju fá að njóta sín með tónlist Bach, Buxtehude og Jóns Þórarinssonar. Auk þess verður flutt jólaorgeltónlist. Miðaverð 1.000 kr.

By |2007-11-30T11:17:18+00:0030. nóvember 2007 11:17|

Subbuleg vinátta æskulýðsfélaga

NeDó, unglingastarf Neskirkju og Dómkirkju, leggur mikið uppúr vináttu við önnur æskulýðsfélög og nánust er vinátta okkar við MeMe, æskulýðsfélag Digraneskirkju. MeMe kom í heimsókn nú í Nóvember og þáði veglegan subbufund í salarkynnum NeDó-inga. Eins og sést á myndunum var rosa stuð og þrifin stóðu fram á nótt. Takk fyrir komuna kæru MeMe-ingar.

By |2007-11-29T22:30:44+00:0029. nóvember 2007 22:30|

Vín og ljúfir tónar

Föstudagur 30. nóvember kl. 20 mun barrokkhópurinn Rinascente ver með tónleika undir yfirskriftinni "Vín og ljúfir tónar" í safnaðarheimili kirkjunnar. Þar verður flutt tónlist eftir Bach, Muffat og tvær einsöngskantötur eftir G. F. Händel. Kantöturnar samdi Händel á Ítalíuárum sínum og til þess að skapa rétta stemningu verður "Vín og matur" með vínkynningu á ítölskum [...]

By |2007-11-29T00:00:00+00:0029. nóvember 2007 00:00|