Ekkert gjald meðan beðið er hjá símanum og ekki heldur í kirkjunni! Kirkjan er ekki aðeins opin á sunnudögum heldur líka hvunndags. Fyrirbænamessa er í Neskirkju í hádeginu á miðvikudögum, kl. 12,15. Þú og fyrirbænaefni þín eru velkomin.

Ekkert gjald meðan beðið er hjá símanum og ekki heldur í kirkjunni! Kirkjan er ekki aðeins opin á sunnudögum heldur líka hvunndags. Í hverri viku ársins er fyrirbænamessa á miðvikudögum kl. 12.15.

Messan tekur um 20 mínútur. Við upphaf er leikið á orgel og klukkum hringt. Síðan er sunginn sálmur, lesinn ritningartexti og prestur flytur örhugvekju. Eftir fyrirbænir er altarisganga. Mörgum þykir gott að geta gengið í guðshús í miðri viku og þegið sakramenti.

Að messu lokinn getur fólk fengið sér hressingu á Torginu, súpu og brauð, kaffi og meðlæti. Beiðni um fyrirbæn má koma til prestanna.

Í kirkjuna er gott að koma, ekkert gjald er tekið meðan beðið er. Svo er sambandið gott, rofnar aldrei og flutningsgetan mikil!