Æskulýðsstarf Neskirkju.

Æskulýðsfélagið NeDó (fyrir 8.-10. bekk) er með fundi á þriðjudagskvöldum kl. 19:30-21:30.

Umsjón með æskulýðsfélginu hafa Tinna og Ríkó.  Starfið er opið öllum ungmennum í 8.-10. bekk. Dagskrá NeDó er fjölbreytt og skemmtileg. Við hvetjum alla unglinga sem hafa áhuga á að prófa NeDó að hika ekki við að láta sjá sig. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband með því að senda tölvupóst á  neskirkja@gmail.com.

Nedó fer á tvö æskulýðsmót á hverjum vetri:

Það fyrra er Landsmót ÆSKÞ sem heldið er í október ár hvert og eru þáttakendur i 8. bekk og upp í 1. ár í framhaldsskóla frá öllum landshlutum. Mótið er haldið á mismunandi stöðum um allt land. Meiri upplýsingar má finna á heimasíðu ÆSKÞ.

Seinna mótið er Febrúarmót ÆSKR og er það haldið í Vatnaskógi í hverjum febrúar. Þáttakendur eru í 8.-10. bekk á stórhöfuðborgarsvæðinu.