NeDó, unglingastarf Neskirkju og Dómkirkju, leggur mikið uppúr vináttu við önnur æskulýðsfélög og nánust er vinátta okkar við MeMe, æskulýðsfélag Digraneskirkju. MeMe kom í heimsókn nú í Nóvember og þáði veglegan subbufund í salarkynnum NeDó-inga. Eins og sést á myndunum var rosa stuð og þrifin stóðu fram á nótt. Takk fyrir komuna kæru MeMe-ingar.