Ingibjörg R. Guðmundsdóttir bað almennu kirkjubænina í messu 9. desember 2007. Bænin er birt hér á vef Neskirkju. Smellið á áfram og stillið sálina að bænarefnum.

Almenn kirkjubæn 9. desember 2007

Drottin Guð, þú skapari himins og jarðar. Við þökkum að við skulum fá að koma hér saman í kirkju þinni til að lofa þig og tilbiðja. Við þökkum þér fyrir lífið og kærleikann og við biðjum þig að bænheyra okkur nú, þegar við komum fram fyrir þig full þakklætis fyrir þær miklu gjafir, sem við höfum þegið af þér.

Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Svar: Drottinn, heyr vora bæn.

Við biðjum þig Drottinn að blessa kirkju þína og alla sem í henni starfa, innanlands og utan. Veit henni anda sannleika, einingar og friðar og gef að við öll, sem játumst þér, lifum saman í eindrægni og kærleika.

Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Svar: Drottinn, heyr vora bæn.

Við biðjum þig að varðveita land og þjóð og veita leiðsögn öllum þeim, sem gegna vandasömum störfum í almannaþágu. Blessa valdhafa og dómstóla. Styrk atvinnuvegi okkar og gef okkur vit og heilindi til að velja réttar leiðir. Við biðjum þig að koma inn í hjörtu þeirra, sem leiða stórveldi og stríðshrjáðar þjóðir, og gefa þeim anda friðar og kærleika.

Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Svar: Drottinn, heyr vora bæn.

Algóði faðir, við biðjum þig að blessa íslenskt samfélag og fósturjörð okkar. Hjálpaðu okkur að viðhalda frjálsu og réttlátu þjóðfélagi. Gefðu að mannvirðing og náungakærleikur vaxi og að við göngum á þínum vegum. Hjálpaðu okkur að vernda náttúruna og umgangast landið, þessa dýrmætu gjöf þína, af virðingu.

Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Svar: Drottinn, heyr vora bæn.

Við biðjum fyrir þeim, sem eru á bænalista hér í Neskirkju og fyrir öllum þeim, sem eru sjúk eða sorgmædd. Við nefnum nöfn þeirra í hljóði………. Algóði Guð, við biðjum þig að mæta þeim og fjölskyldum þeirra, lækna þau, hugga, líkna og gleðja. Leyf þeim að hvíla í þér og finna þá stórkostlegu náð, frið og blessun, sem þú einn getur gefið. Við minnumst þeirra sem eru sofnuð og biðjum þig að láta þitt eilífa ljós lýsa þeim.

Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Svar: Drottinn, heyr vora bæn.

Við felum þér Drottinn líf okkar og starf og biðjum að við megum vinna ljóssins verk á meðan dagur er. Blessa þú heimili okkar og fjölskyldur og gef að okkur auðnist að lifa í sátt og kærleika og vera ávallt fyrst til að fyrirgefa og leita sátta, ef eitthvað út af ber.

Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Svar: Drottinn, heyr vora bæn.

Himneski faðir, gef okkur að muna á öllum stundum að við erum þín börn og að ekkert getur gert okkur viðskila við náð þína og miskunn. Kom til þeirra, sem kvíða jólunum og leyfðu þeim að finna að þau eru aldrei ein heldur umvafin kærleika þínum.

Blessa okkur öllum aðventuna og gef að hún verði góður innri undirbúningur fyrir komu jólanna.

Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.

Svar: Drottinn, heyr vora bæn.