Föstudagur 30. nóvember kl. 20 mun barrokkhópurinn Rinascente ver með tónleika undir yfirskriftinni „Vín og ljúfir tónar“ í safnaðarheimili kirkjunnar. Þar verður flutt tónlist eftir Bach, Muffat og tvær einsöngskantötur eftir G. F. Händel. Kantöturnar samdi Händel á Ítalíuárum sínum og til þess að skapa rétta stemningu verður „Vín og matur“ með vínkynningu á ítölskum vínum í hléi. Miðaverð 1.500 kr.