Kristniboðsdagurinn 11. nóvember
Sunnudaginn 11. nóvember er kristniboðsins minnst í Þjóðkirkjunni. Þá er að venju messa og barnastarf kl. 11. Kristján Þór Sverrisson kristniboði kemur í heimsókn og segir frá starfi kristniboðssambandssins. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn hefst [...]
Líkamin í frosti!
Krossgötur þriðjudaginn 6. nóvember kl. 13.00. Sölvi Tryggvason, fjölmiðlamaður og kuldaþoli kemur í heimsókn og heldur erindi sem hann kallar: Líkamin í frosti! Kaffiveitingar. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.
Messa og sunnudagaskóli 4. nóvember
Þann 4. nóvember verður messa og sunnudagskóli kl. 11 að vanda. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng í messunni undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Fjallað verður um erfiðu spurningarnar í lífinu. Tendruð verða ljós í minningu látinna. Sunnudagaskólinn hefst inni í kirkju [...]
Krílasöngur fimmtudag 1. nóv. kl. 11
Nú standa yfir Óperudagar í Reykjavík. Í tilefni af því verða krílasöngvar í Neskirkju kl. 11 fimmtudaginn 1. nóvember. Leiðbeinandi er Svafa Þórhallsdóttir söngkona og er aðgangur ókeypis. Krílasöngur er ætlaður fyrir börn frá 3ja mánaða aldri til eins árs. Á stundunum er sungið og dansað og hlustað á tónlist. [...]
Skammdegisbirta
Skammdegisbirta er heiti á samveru hér í Neskirkju sem verður í annað sinn fimmtudaginn 1. nóvember kl. 18. Þar fléttum við saman tali, tónum, mat og skemmtilegum félagsskap. Sverrir Jakobsson ætlar að tala um nýútkomna bók sína: Kristur. Saga hugmyndar; Steingrímur organisti spilar Bach og spjallar um verkin, Þorgeir Tryggvason, [...]
Fullveldisárið og sagnir af alþýðufólki
Krossgötur þriðjudaginn 29. október kl. 13.00. Óskar Guðmundsson sagnfræðingur: Það var fyrir hundrað árum. Fullveldisárið 1918 og sagnir af alþýðufólki. Kaffiveitingar. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.
Prjónahópur Neskirkju mánudagskvöld
Síðasta mánudagskvöld hvers mánaðar kl 20 er opið hús í kjallara Neskirkju fyrir áhugafólk um prjónskap og handavinnu. Prjónahópur Neskirkju og er opinn hópur og allir velkomnir. Hellt er upp á kaffi og stundum koma einhverjir með meðlæti en aðaláherslan er á handavinnu og spjall. Umsjón með samverunum hafa Alfa [...]
Fjölskylduguðsþjónusta 28. október
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakórar Neskirkju syngja undir stjórn Þórdísar Sævarsdóttur. Þema dagsins er Hver er mestur og hvernig verður maður mestur? Það verður skoðað á ýmsan hátt. Léttir og líflegir söngvar við undirleik Steingríms Þórhallssonar. Jónína Ólafsdóttir guðfræðingur og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir leiða stundina. Létt hressing og samfélag á [...]
Að eldast á Íslandi
Krossgötur þriðjudaginn 23. október kl. 13.00 Dr. Sigurveig H. Sigurðardóttir, félagsráðgjafi, dósent í félagsráðgjöf, Háskóla Íslands fjallar um að eldast á Íslandi, áhrif langlífis á einstaklinga, fjölskyldur og samfélag. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu [...]
Messa 21. október
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisi Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, söngur og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Steinunn Arnþrúður, Katrín Helga og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.