Spænska veikin 1918 og Hólavallakirkjugarður
Á Krossgötur þriðjudaginn 16. október kl. 13.00 kemur Heimir Janusarson, kirkjugarðsvörður í Hólavallakirkjugarði í heimsókn. Hann fjallar um spænsku veikina sem geysaði hér árið 1918 og segir ýmsar sögur sem lýsa tíðarandanum um það leyti og því ástandi sem leiddi meðal annars til þess að stækka þurfti garðinn. Kaffiveitingar.
Messa 14. október
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katrín, Heba og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Ættjarðarlög
Krossgötur þriðjudaginn 9. október. Guðbjörn Sigurmundsson, kennari, fjallar um ættjarðarlög Íslendinga. Kaffiveitingar og söngur. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.
Uppvöxtur og uppskera
Uppskerumessa 7. október kl. 11. Messan er helguð gjöfum jarðar. Þakkir færðar í tali og tónum. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Kór Neskirku syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katrín, Heba og Ari. Grænmetissúpa úr aldingarði organistans í boði eftir messu [...]
Skammdegisbirta
Fimmtudaginn 4. október kl. 18 hefst dagskrárröð í Neskirkju sem gengur undir nafninu, Skammdegisbirta. Kvöldið hefst á höfugum Bachtónum sem Steingrímur Þórhallsson töfrar fram úr orgelinu. Steingrímur kynnir tónlistina og tónskáldið. Gestir ganga svo að borðum þar sem matarmikil súpa er borin fram. Eftir skvaldur og skraf ræðir sr. Arna [...]
Krossgötur 2. október
Krossgötur 2. október kl. 13.00. Kjartan Jónsson, sóknarprestur í Ástjarnarkirkju og kristniboði fjallar um Afríku í máli og myndum. Kaffiveitingar og samsöngur. Í hádeginu, eða kl. 12.10, er boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig er í hádeginu hægt að kaupa máltíð á hagstæðu verði.
Messa 30. september
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar út Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudagskólanum í safnaðarheimilinu. Umsjón Katrín, Heba og Ari. Kaffisopi og samfélaga á Torginu eftir messu.
Krossgötur 25. september
Krossgötur miðvikudaginn 25. september kl. 13. Heimsókn í Þjóðminjasafnið. Ljósmyndasýningin Hver er á myndinni? skoðuð. Lagt af stað frá kirkjunni fljótlega eftir kaffisopa kl 13. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.
Messa 23. september
Messa og barnastarf kl. 11. Líf og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katrín, Heba, Jónína og Ari. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Sýning Siggu Bjargar, Blettur, á Torginu í safnaðarheimilinu verður opnuð að messu lokinni og fjallað verður um verkin [...]
Blettur
Sýning Siggu Bjargar, Blettur, opnar á Torginu sunnudaginn 23. september. Að vanda verða verkin til umfjöllunar í predikun dagsins og í framhaldi af messunni verður sýningin formlega opnuð. Sigga Björg Sigurðardóttir útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2001. Stuttu eftir það flutti hún til Skotlands og útskrifaðist [...]