Aðventu- og ljósahátíð
Þriðja sunnudag í aðventu, 16. desember, verður aðventu- og ljósahátíð kl. 20. Margrét Lára Jónsdóttir leikur á fiðlu, Drengjakór Reykjavíkur syngur og Kór Neskirkju syngur og leiðir söng. Fermingarbörn lesa ritningartexta og lýsa upp stundina. Diljá Sigursveinsdóttir, tónlistarkona, flytur hugvekju. Að lokinni samveru í kirkjunni er boðið upp á hressingu í [...]
Þriðji sunnudagur í aðventu, 16. desember
Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng og flytja raddaðan söng. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, gleði og gaman í barnastarfinu í umsjón Margrétar Hebu Atladóttur, Jónínu Ólafsdóttur og Ara Agnarssonar. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.
Skammdegisbirta
Dimm dagskrá um jólaföstu og jól á Torginu í Neskirkju fimmtudaginn 6. desember kl. 18. Steingrímur Þórhallsson flytur og kynnir sálmaforleiki sem tilheyra desember. Pétur Húni Björnsson segir sögur af heilögum Nikulási, verndardýrlingi gömlu Neskirkju. Helga Mauren Gylfadóttir les draugasögur á aðventu. Sr. Skúli S. Ólafsson flytur varnarræðu Grýlu. Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Steingrímur fremja myrkraverk milli atriða. Boðið er upp [...]
Beethoven á Krossgötum
Krossgötur þriðjudaginn 4. desember kl. 13.00. Áslaug Gunnarsdóttir, píanóleikari, og Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir, fiðluleikari, kynna og flytja sónötu eftir Beethoven. Randalínur og heit súkkulaði! Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.
1. sunnudagur í aðventu
Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur eru sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson sem predikar. Söngur, gleði og gaman í barnastarfinu í umsjá Katrínar Helgu Ágústsdóttur, Magrétar Hebu Atladóttur og Ara Agnarssonar. Að lokinni messu verður sýningin [...]
Prjónahópurinn í jólaskapi
Prjónahópur Neskirkju hittist kl. 20 á mánudagskvöld, 26. nóvember í kjallara kirkjunnar. Þetta er opinn hópur og allir velkomnir sem hafa áhuga á handavinnu. Þetta kvöld verðum við í jólaskapi og koma má með jólahandavinnu til að sýna, auk hinnar hefðbundnu handavinnu. Kaffi og hressing.
Sunnudagaskóli, messa og kvöldmessa þann 25. nóvember
Messa og sunnudagaskóli kl. 11 þennan síðasta sunnudag kirkjuársins. Háskólakórinn syngur í messunni undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar sem einnig leikur undir. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólanum stýra Katrín Helga Ágústsdóttir og Margrét Heba Atladóttir við hressan undirleik Ara Agnarssonar. Þar má búast við miklum söng og leik. Samfélag [...]
Sakamál fyrri alda!
Krossgötur þriðjudaginn 20. nóvember kl. 13.00. Sett út af sakramentinu. Sakamál fyrri alda. Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur í Neskirkju fjallar um efnið. Kaffiveitingar. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.
Messa sunnudaginn 18. nóvember
Messsa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Gleði og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón Heba, Jónína og Ari. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.
Þjóðlög
Krossgötur þriðjudaginn 13. nóvember kl. 13.00. Gunnsteinn Ólafsson, tónlistarmaður og tónskáld: Verður þjóðlögunum bjargað? Þjóðlagasöfnun Bjarna Þorsteinssonar um aldamótin 1900 og áhrif hennar á íslenskt tónlistarlíf. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.