Fréttir

Háski, gáski og köllun manns

Málm- og gips-verk Steinunnar Þórarinsdóttur spyrja um líf. Textar Biblíunnar spyrja um tilgang. Til hvers erum við kölluð, gáska eða háska. Prédikun sr. Sigurðar Árna 28. september 2008, á opnunardegi Steinunnarsýningar er hér á bak við þessa smellu.

By |2008-09-28T13:20:31+00:0028. september 2008 13:20|

Messa og opnun Steinunnarsýningar 28. september

Alla helga daga ársins og miðvikudaga að auki er messað í Neskirkju. Sunnudaginn 28. september munu félagar úr Háskólakórnum syngja í messunni sem hefst kl. 11. Organisti verður Steingrímur Þórhallsson, prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Börnin hefja helgihald í kirkjunni en fara síðan til sinna starfa. Eftir messu mun dr. Pétur Pétursson opna sýningu Steinunnar [...]

By |2008-09-25T21:10:48+00:0025. september 2008 21:10|

Fermingarfræðslan í Neskirkju

Fundur með foreldrum/aðstandendum fermingarbarna verður fimmtudagskvöldið 25. september kl. 18-19 í safnaðarheimili Neskirkju. Fermingarbörnin mæta ekki á þennan fund!Fermingarbörnin mæta hins vegar á fræðslukvöld, sama dag, sem byrjar kl. 19.30 og stendur til kl. 21. Skyldumæting er á fræðslukvöldin og verður næsta haldið 30. október en þá mæta foreldrar og börn saman.

By |2008-09-23T22:03:23+00:0023. september 2008 22:03|

Málmur, gifs, fólk og Andinn

Myndlistarsýning Steinunnar Þórarinsdóttur í og við Neskirkju verður opnuð sunnudaginn 28. september. Steinunn er einn merkasti skúlptúristi Íslendinga. Hún hefur gert margar stórkostlegar myndir og hróður hennar hefur borist víða. Sýningin er sett upp á vegum Neskirkju. […]

By |2008-09-23T21:26:04+00:0023. september 2008 21:26|

Foreldramorgnar

Foreldramorgun fimmtudaginn 25. september kl. 10. Hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslunni á Seltjarnarnesi verður með fræðslu. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga milli kl. 10 og 12.

By |2008-09-23T10:27:13+00:0023. september 2008 10:27|

Opið hús

Opið hús miðvikudaginn 24. september kl. 15. Sváfnir Sigurðarson markaðsstjóri Borgarleikhússins og Kristrún Hauksdóttir kynningarstjóri Þjóðleikhússins segja frá verkefnaskrámleikhúsanna í vetur og svara fyrirspurnum. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi. Umsjón með starfinu hefur Hjörtur Pálsson guðfræðingur og skáld. Sjá dagskrá vetrarins hér!

By |2008-09-23T09:47:37+00:0023. september 2008 09:47|

Messa sd. kl. 11 – Frumlag elskunnar, Abba og leitin að pabba

Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Þema dagsins er Hið æðsta boðorð. Hvernig tengist hin vinsæla kvikmynd Mamma mia með Abba-tónlistinni Hinu æðsta boðorði? Kaffi og spjall á Torginu að messu lokinni. Fermingarbörn hvött til þáttöku. Hægt er að hlusta [...]

By |2008-09-19T09:33:19+00:0019. september 2008 09:33|

Kór Neskirkju – raddprófanir

Kór Neskirkju hóf fyrir skömmu æfingar eftir sumarfrí. Kórinn vill gjarnan bæta við áhugasömum einstaklingum og sóst er eftir fólki á aldrinum 20-40 ára. Reynsla eða kunnátta í söng og/eða nótnalestri er æskileg. Nú er rétti tíminn til að byrja. Raddprófanir fyrir áhugasama verða miðvikudaginn 17. september kl. 16:00-18:00 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar: steini@neskirkja.is [...]

By |2008-09-15T11:02:50+00:0015. september 2008 11:02|

Heimsendi frestað

Gull, silfur, dramb, hroki, príl og stólar eru byggingarefni heimsenda í lífi fólks. Þegar menn verða rangeygir varðandi lífsgæðin smeygir dauðinn sér inn og heimsendir hefst. Í prédikun sr. Sigurðar Árna 14. september 2008, sem er að baki þessari smellu, er fjallað um frestun heimsenda og hið góða líf.

By |2008-09-15T10:17:38+00:0015. september 2008 10:17|

Heimsendir í vændum?

Barnastarf og messa hefjast í kirkjunni kl. 11. Félagar í kór Neskirkju syngja. Messuhópur þjónar. Sr. Sigurður Árni predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki. Steingrímur organisti, Rúnar meðhjálpari, Sigrvin, María, Ari, Alexandra og Andrea stjórna barnastarfinu. Gæðasúpa á Torginu eftir messu. Hvað um heimsenda? Messan veldur honum ekki en um hann verður fjallað [...]

By |2008-09-11T11:10:30+00:0011. september 2008 11:10|