Kór Neskirkju hóf fyrir skömmu æfingar eftir sumarfrí. Kórinn vill gjarnan bæta við áhugasömum einstaklingum og sóst er eftir fólki á aldrinum 20-40 ára. Reynsla eða kunnátta í söng og/eða nótnalestri er æskileg. Nú er rétti tíminn til að byrja. Raddprófanir fyrir áhugasama verða miðvikudaginn 17. september kl. 16:00-18:00 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar: steini@neskirkja.is eða 896-8192