Fundur með foreldrum/aðstandendum fermingarbarna verður fimmtudagskvöldið 25. september kl. 18-19 í safnaðarheimili Neskirkju. Fermingarbörnin mæta ekki á þennan fund!

Fermingarbörnin mæta hins vegar á fræðslukvöld, sama dag, sem byrjar kl. 19.30 og stendur til kl. 21.

Skyldumæting er á fræðslukvöldin og verður næsta haldið 30. október en þá mæta foreldrar og börn saman.