Alla helga daga ársins og miðvikudaga að auki er messað í Neskirkju. Sunnudaginn 28. september munu félagar úr Háskólakórnum syngja í messunni sem hefst kl. 11. Organisti verður Steingrímur Þórhallsson, prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Börnin hefja helgihald í kirkjunni en fara síðan til sinna starfa. Eftir messu mun dr. Pétur Pétursson opna sýningu Steinunnar Þórarinsdóttur í og við Neskirkju. Súpa og kaffi eftir messu á Torginu.