Fréttir

!Hero – sælla minninga.

Vorið 2009 setti KFUM og KFUK á Íslandi upp söngleikinn !Hero í Loftkastalanum og var sú sýning ein metnaðarfyllsta sem kristilegt æskulýðsstarf hefur staðið fyrir. !Hero hópurinn kemur saman í kvöld í Neskirkju í tilefni af nýútkomnum DVD diski með sýningunni, sem einungis er fáanlegur í gegnum leikstjóra !Hero Rakel Brynjólfsdóttur.

By |2017-04-26T12:23:39+00:001. september 2011 20:36|

Vei þér, vei þér…

Jesús leitaði ekki eftir að menn álitu hann ofuregó veraldar, stærsta strákinn, óháða snillinginn, heldur var sjálf hans helgað æðri og skilgreinandi veruleika, sem varðaði fjölskyldu, vini, þjóð og alla veröldina. Sjálf og líf hans varð farvegur, tilvísun og tákn um erindi Guðs. Prédikun Sigurðar Árna 28. ágúst 2011, bæði hljóðskrá og texti, er að [...]

By |2017-04-26T12:23:39+00:0028. ágúst 2011 20:29|

Messan 28. ágúst

Messað er í Neskirkju alla helga daga. Sunnudaginn 28. ágúst hefst messan kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti: Steingrímur Þórhallsson. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða í messunni. Textar eru úr B röð 10. sunnudags eftir þrenningarhátíð. Þá má nálgast á bak við þessa smellu. Svo er alltaf [...]

By |2011-08-27T11:11:17+00:0027. ágúst 2011 11:11|

Fyrsta altarisganga fermingarbarna

Messa  21. ágúst kl. 11. Fermingarbörn sem voru á námskeiði í liðinni viku munu ganga til altaris í fyrsta sinn í fylgd sinna nánustu. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestarnir Örn Bárður Jónsson og Sigurður Árni Þórðarsona þjóna fyrir altari og mun Örn prédika.

By |2011-08-20T12:04:46+00:0020. ágúst 2011 12:04|

Svöngu börnin í Bíafra

Hungursneyð í Afríku er orðinn einskonar fasti í okkar menningu. Í áratugi hafa svöngu börnin í Afríku komið upp þegar börn vilja ekki klára matinn sinn og fréttamyndir af vannærðum börnum eru að okkur finnst daglegt brauð í fréttaflutningi sjónvarpsstöðva. En ábyrgð okkar við skírnarfontinn nær út fyrir fjölskyldu okkar og ástvinahóp. Prédikun Sigurvins Jónssonar [...]

By |2017-04-26T12:23:39+00:008. ágúst 2011 23:25|

Jesús kominn út úr skápnum

Jesús og lærisveinar hans voru hópur samkynhneigðra karlmanna. Í því ljósi breytist merking þeirrar vináttu sem lýst er svo afdrifaríkt í guðspjöllunum, elskaði lærisveinninn í Jóhannesarguðspjalli var ástmaður Jesú, og vinahópur lærisveinanna samfélag homma sem stóð saman í vináttu og ástum andspænis samfélagi sem gat ekki meðtekið kynhneigð þeirra. Prédikun Sigurvins Jónssonar sunnudaginn 31. júlí [...]

By |2017-04-26T12:23:39+00:0031. júlí 2011 13:15|

Messa 31. júlí

Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Kári Allanson. Sr. Sigurvin Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og samfélag eftir messu á Torginu.

By |2011-07-28T11:56:09+00:0028. júlí 2011 11:56|

Eboo, Osló og trúarlínan

Það er hægt að hafa áhrif á og móta ungt fólk og það er mikið í húfi. Það unga fólk sem kynnist trúarlegum veruleika og trúarlegri nálgum sem er öfgalaus, umburðalynd og nærandi mun ekki aðhyllast þær öfgaraddir innan trúarbragðanna og gegn trúarbrögðum sem svo víða leynast. Öfgahyggja og öfgatrú kann að virðast á stundum [...]

By |2017-04-26T12:23:39+00:0024. júlí 2011 13:21|

Sævar Ciesielski og grjótkastið

Erum við grjókastarar í hjarta eða verðir lífs? Í stað þess að henda steinum getum við skrifað í sandinn ný kerfi og lausn hinna þolandi. Jesús bjó til nýja sögu. Prédikun Sigurðar Árna í Neskirkju 17. júlí 2011 varðar hórseka konu, dæmdan mann og fyrirmyndar viðbrögð Jesú Krists. Hægt er að lesa prédikunina að baki [...]

By |2017-04-26T12:23:39+00:0017. júlí 2011 17:44|

Messa 17. júlí

Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson pédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og samfélag eftir messu á Torginu.

By |2011-07-15T11:27:00+00:0015. júlí 2011 11:27|