Fréttir

Messa 30. október

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Hlómur, kór eldri borgar syngur. Stjórnandi og organisti Magnús Ragnarsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |2011-10-27T13:27:33+00:0027. október 2011 13:27|

Lykilmennirnir Jakob og Esaú

Við þekkjum það öll hversu vont það er að vera lyklalaus og lokuð úti. Lyklar ljúka upp dyrum og ný veröld blasir við. Í fræðslunámskeiðinu á þriðjudagskvöldum er hugað að lyklum í Gamla testamentinu. Í kvöld, 25. október, verður skoðuð sagan um tvíburana Jakob og Esaú. Þeir slógust í móðurkviði og tókust á í lífinu. [...]

By |2011-10-25T09:59:41+00:0025. október 2011 09:59|

Lífið og fjölskyldan

Opið hús 26. október. Lífið og fjölskuyldan. Davíð Scheving Thorsteinsson var frumkvöðull í  iðnvæðingur Íslands. Hann var formaður  Fél. ísl. iðnrekenda og forstjóri í fyrirtækinu SÓl. Davíð mun tala um það sem skiptir hann mestu máli, lífið og fjölskylduna. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15. Dagskrá haustsins.

By |2011-10-25T09:41:02+00:0025. október 2011 09:41|

Að vera

Það er búið að narta í Apple-lógið. Eplið minnir okkur á Edensöguna. Mannfólkið vill vita meira, víkka út vitund, nýta möguleika. Svo lærum við að lífið er hverfult. Standa eplabitarnir í okkur eða lærum við að njóta ávaxta lífsins – að vera? Að vera - eða að gera. Prédikun Sigurðar Árna 23. október 2011, bæði [...]

By |2017-04-26T12:23:36+00:0023. október 2011 18:43|

Týndur – fundinn – uppskrift !

Guðsríkið sprengir beinhart réttlætið. Í nútímaaðstæðum getum við séð í týnda syninum fólk af öllum gerðum og tegundum, fólk úr mismunandi hefðum og átrúnaði, sukkara, fjárplóga, misindismenn, fólk úr öllum stéttum og líka mestu bölvalda fólks. Sá guð sem Jesús Kristur sýnir okkur er hinn stóri Guð elskunnar sem faðmar alla. Uppskriftin fyrir veislu týnda [...]

By |2011-10-21T09:37:09+00:0021. október 2011 09:37|

Veisla fyrir týndan son

Biblíumáltíðir eru í Neskirkju á föstudögum kl. 12. Föstudaginn 21. október, verður haldin veisla til fagnaðar týnda syninum, sem sagt er frá í  15. kafla Lúkasarguðspjalls. Hver var og er týndur? Hvað merkir sagan og hvernig var veislan, sem pabbinn hélt manninum sem sóaði auði fjölskyldunnar? Týndir og fundnir hjartanlega velkomnir og allir hinir líka.

By |2011-10-20T10:27:31+00:0020. október 2011 10:27|

Messa 23. október

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Thoma. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |2011-10-20T09:58:07+00:0020. október 2011 09:58|

Maríukjúklingur

Nærri hundrað manns nutu biblíumáltíðar í Neskirkju í dag. Dómstólaráð hélt framtíðarþing sitt í safnaðarheimilinu og framtíðarhópur kirikjuþings hélt fund um kirkju og framtíð. Kjúklingur sem María í Nasaret hefði getað eldað var á borðum. Undursamleg lykt fyllti safnaðarheimilið og spurningar hljómuðu: „Get ég fengið uppskriftina, ég vil gjarnan elda þetta um helgina.“ Uppskriftin er [...]

By |2011-10-14T22:46:57+00:0014. október 2011 22:46|