Messa og sunnudagaskóli 31. mars
Þann 31. mars er messa og sunnudagaskóli að vanda kl. 11. Háskólakórinn syngur og leiðir söng í messunni undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Í predikuninni verður rætt um brauð frá ýmsum hliðum. Manna í eyðimörkinni, brauð lífsins, altarisbrauð, jafnvel daglegt brauð. Sunnudagaskólinn er í umsjá Katrínar [...]
Föðurlandið í ættjarðarsöngvum
Krossgötur þriðjudaginn 26. mars kl. 13.00. Guðbjörn Sigurmundsson, kennari kemur í heimsókn og heldur erindi sem hann kallar „Föðurlandið í ættjarðarsöngvum“. Söngur, kaffi og kruðerí.
Prjónakvöld og handavinna mánudagskvöld
Prjónakvöld 25. mars. Prjónahópur Neskirkju er óformlegur hópur áhugafólks um handavinnu og samfélag. Við komum með handavinnu, hitum kaffi og te og spjöllum saman, sýnum afrakstur, leitum ráða, lærum eitthvað nýtt og eigum góða stund saman. Samverur eru einu sinni í mánuði, síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 20. Næsta samvera [...]
Messa 24. mars
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Prestur sr. Skúlí S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Söngur, sögur, gleði og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét Heba Atladóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Einelti
Krossgötur þriðjudaginn 19. mars kl. 13.00. Kristjana M. Sigmundsdóttir og Þorlákur Helgi Helgason, baráttufólk gegn einelti koma í heimsókn. Elta minningarnar okkur ævina út? Um einelti í æsku. Sérstakur gestur Krossgatna er biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir sem vísiterar nú Nessókn. Kaffiveitngar og söngur.
Vísitasía biskups
Messa og barnastarf sunnudaginn 17. mars kl. 11. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, vísiterar Nessókn og predikar. Barnakór Neskirkju syngur auk kórs Neskirkju. Organisti er Steingrímur Þórhallsson, stjórnandi barnakórs er Þórdís Sævarsdóttir. Prestar kirkjunnar þjóna fyrir altari ásamt prófasti, biskupsritara og sóknarnefndarfólki. Í sunnudagaskólanum sjá Katrín H. Ágústsdóttir, Gunnar T. Guðnason [...]
Krossgötur 12. mars
Krossgötur, þriðjudaginn 12. mars kl. 13.00. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar um passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar. Söngur, kaffi og kruðeríi að venju!
Guðmundar Ingólfssonar
Sunnudaginn 10. mars kl. 11:00 opnar sýning Guðmundar Ingólfssonar á Torginu í Neskirkju. Fjallað er um verkin í predikun og að messu lokinni ganga sýningargestir á Torgið. Um myndirnar á sýningunni segir Guðmundur: „Myndirnar af innrýmum lýsis- og olíutanka eru að mestu frá árunum 1993–2000 en enn er verið að [...]
Messa 10. mars
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Líf og fjör í sunnudagskólanum. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Gunnar Tómas Guðnason og Ari Agnarsson. Að lokini messu verður ljósmyndasýning Guðmundar Ingólfsson opnuð á Torginu. Samfélag og kaffisopi.
Jesús í Hollywood
Að vanda er hlaðborðið fjölbreytt á Skammdegisbirtu í Neskirkju. Fyrstur spilar Steingrímur Þórhallsson á orgelið valin verk eftir meistara Bach. Sr. Davíð Þór Jónsson, Vesturbæingur með meiru, flytur aðalerindi dagsins og heitir það, Jesús í Hollywood. Já, við erum að sigla inn í föstuna og hann ræðir hvernig Draumaverksmiðjan túlkar [...]