Tyrkjaránið á Krossgötum
Á Krossgötum kl 13 þann 30. apríl mun Þorsteinn Helgason fyrrverandi kennari við Háskóla Íslands fjalla um Tyrkjaránið og ýmis minni sem því tengjast. Þorsteinn er sagnfræðingur og doktorsverkefni hans bar yfirskriftina Menning og saga í ljósi Tyrkjaránsins. Hann er flestum fróðari um þennan viðburð í sögu okkar en hefur [...]
Messa 28. apríl
Messa og barnastarf kl. 11. Sameignlegt upphaf. Háskólakórinn syngur undir stjón Gunnsteins Ólafssonar. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Katrín H. Ágústsdóttir, Gunnar T. Guðnason og Ari Agnarsson. Samfélaga og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Skírdagur, 18. apríl
Messa og máltíð kl. 18.00. Boðið er til máltíðar í kirkjuskipinu þar sem slegið verður upp borði og viðstaddir gæða sér á mat sem þau koma með sem geta og gefa með sér. Brauð og vín er blessað og því deilt út undir borðum. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. [...]
Föstudagurinn langi, 19. apríl,
Helgistund kl. 11.00. Píslarsagan lesin og hugleidd. Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran og Nathalía Druzin Halldórsdóttir syngja kafla úr Stabat Mater eftir Pergolesi. Steingrímur Þórhallsson er við hljóðfærið. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Að lokinni helgistund er kaffi á Torginu og Guðmundur Ingólfsson ræðir verk sín sem þar eru á sýningu [...]
Páskadagur, 21. apríl
Hátíðarmessa kl. 8.00. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið. Prestar kirkjunnar þjóna. Morgunkaffi og páskahlátur að messu lokinni. Fjölskylduguðsþjónusta og páskaeggjaleit kl. 11:00. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir leiðir stundina ásamt starsfólki barnastarfsins.
Kínverska heilsubótarleikfimin, Qi-gong
Krossgötur þriðjudaginn 23. apríl kl. 13.00. Björn Bjarnason, fv. ráðherra, kemur í heimsókn og kynnir hina áhugaverðu kínversku heilsubótarleikfimi, Qi-gong. Kaffiveitingar og söngur.
Messa á vígsluafmæli Neskirkju
Hátíðarmessa og sunnudagaskóli kl. 11 á pálmasunnudag, 14. apríl, vígsluafmæli Neskirkju. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallsonar organista. Sóknarnefndarfólk les bænir og ritningartexta. Sr. Skúli S. Ólafsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Steinunni A. Björnsdóttur. Sunnudagaskólinn verður í safnaðarheimilinu. Katrín H. Ágústsdóttir, Gunnar T. [...]
Ættfræði
Krossgötur þriðjudaginn 9. apríl kl. 13.00. Oddur F. Helgason, ættfræðingur, fjallar um ættfræðina frá ýmsum hliðum. Kaffiveitingar og söngur.
Messa og sunnudagaskóli 7. apríl
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf inni í kirkju. Í messunni verður boðunardegi Maríu fagnað í tali og tónum. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Í sunnudagaskólanum halda Katrín Helga Ágústsdóttir og Ari Agnarsson uppi fjörinu í söng og sögum. Sameiginleg [...]
Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar á Krossgötum
Margrét Bóasdóttir, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, verður gestur okkar á Krossgötum kl 13, þriðjudaginn 2. apríl. Hún ætlar að kynna vinnu við nýja sálmabók og við munum reyna okkur við að syngja einhverja af nýju sálmunum. Að venju eru veglegar kaffiveitingar og gott spjall hluti af stundinni.