1. sunnudagur í aðventu
Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur eru sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson sem predikar. Söngur, gleði og gaman í barnastarfinu í umsjá Katrínar Helgu Ágústsdóttur, Magrétar Hebu Atladóttur og Ara Agnarssonar. Að lokinni messu verður sýningin [...]
Prjónahópurinn í jólaskapi
Prjónahópur Neskirkju hittist kl. 20 á mánudagskvöld, 26. nóvember í kjallara kirkjunnar. Þetta er opinn hópur og allir velkomnir sem hafa áhuga á handavinnu. Þetta kvöld verðum við í jólaskapi og koma má með jólahandavinnu til að sýna, auk hinnar hefðbundnu handavinnu. Kaffi og hressing.
Sunnudagaskóli, messa og kvöldmessa þann 25. nóvember
Messa og sunnudagaskóli kl. 11 þennan síðasta sunnudag kirkjuársins. Háskólakórinn syngur í messunni undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar sem einnig leikur undir. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólanum stýra Katrín Helga Ágústsdóttir og Margrét Heba Atladóttir við hressan undirleik Ara Agnarssonar. Þar má búast við miklum söng og leik. Samfélag [...]
Sakamál fyrri alda!
Krossgötur þriðjudaginn 20. nóvember kl. 13.00. Sett út af sakramentinu. Sakamál fyrri alda. Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur í Neskirkju fjallar um efnið. Kaffiveitingar. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.
Messa sunnudaginn 18. nóvember
Messsa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Gleði og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón Heba, Jónína og Ari. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.
Þjóðlög
Krossgötur þriðjudaginn 13. nóvember kl. 13.00. Gunnsteinn Ólafsson, tónlistarmaður og tónskáld: Verður þjóðlögunum bjargað? Þjóðlagasöfnun Bjarna Þorsteinssonar um aldamótin 1900 og áhrif hennar á íslenskt tónlistarlíf. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.
Kristniboðsdagurinn 11. nóvember
Sunnudaginn 11. nóvember er kristniboðsins minnst í Þjóðkirkjunni. Þá er að venju messa og barnastarf kl. 11. Kristján Þór Sverrisson kristniboði kemur í heimsókn og segir frá starfi kristniboðssambandssins. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn hefst [...]
Líkamin í frosti!
Krossgötur þriðjudaginn 6. nóvember kl. 13.00. Sölvi Tryggvason, fjölmiðlamaður og kuldaþoli kemur í heimsókn og heldur erindi sem hann kallar: Líkamin í frosti! Kaffiveitingar. Í hádeginu, eða kl. 12.10, verður boðið upp á bænastundir og íhugun í kirkjuskipinu. Einnig má í hádeginu má kaupa máltíð á hagstæðu verði.
Messa og sunnudagaskóli 4. nóvember
Þann 4. nóvember verður messa og sunnudagskóli kl. 11 að vanda. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng í messunni undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Fjallað verður um erfiðu spurningarnar í lífinu. Tendruð verða ljós í minningu látinna. Sunnudagaskólinn hefst inni í kirkju [...]
Krílasöngur fimmtudag 1. nóv. kl. 11
Nú standa yfir Óperudagar í Reykjavík. Í tilefni af því verða krílasöngvar í Neskirkju kl. 11 fimmtudaginn 1. nóvember. Leiðbeinandi er Svafa Þórhallsdóttir söngkona og er aðgangur ókeypis. Krílasöngur er ætlaður fyrir börn frá 3ja mánaða aldri til eins árs. Á stundunum er sungið og dansað og hlustað á tónlist. [...]