Að dæma réttláta dóma
Messa 1. júlí kl. 11. Rætt verður um afstöðu Jesú til hórseku konunnar í Jóhannesarguðspjalli 8.1-11. Sekt eða sýkna? Má dæma aðra? Hver er sekur? Hver dæmir? Hver borgar sektina? Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. […]
Leikjanámskeiðin komin í frí fram í lok júlí
Síðara leikjanámskeiði júnímánaðar lauk nú á föstudag og var það fullsótt með 22 þáttakendum. Hópurinn lék sér saman í kirkjunni, föndraði úr skeljum og kuðungum, heimsótti Árbæjarsafn og fór í rútuferð til Hveragerðis þar sem hverasvæðið var skoðað og sníktur ís í Kjörísverksmiðjunni. Að vanda tókum við fullt af myndum [...]
Týndur – fundinn
Í nágrenni þínu er pirrað tölvuleikjafólk. Þegar tölvunni er kippt úr sambandi verða uppþotin. Er krakkinn orðinn vitlaus? Er hér komin nútímaútgáfa af sögu Jesú? Týndi sonurinn í tölvuheimum, týnda dóttirin á nethögum? Prédikun sr. Sigurðar Árna er hér.
Týndur sonur og sálmar
Í messunni 24. júní verður íhuguð líkingasaga Jesú um týnda soninn, öfund bróður hans og sérkennilegan föður þeirra. Hvers konar fjölskylda var þetta og hverjar eru hliðstæðurnar í samtíðinni? Messan hefst kl. 11 og kaffi eftir messu. […]
Vel heppnað leikjanámskeið og annað í gangi.
Fyrsta leikjanámskeið sumarsins er lokið og var ótrúlega skemmtilegur hópur sem það sótti. Búið er að setja helling af myndum frá námskeiðinu á myndasvæði æsklýðsstarfsins. Nú er í fullum gangi seinna júnínámskeiðið og eru 21 barn hjá okkur í kirkjunni þessa viku. Við minnum á að skráning er hafin fyrir [...]
Prédikun 17. júní á vefnum
Hægt er að lesa prédikun sr. Arnar Bárðar, Uppskrift að þjóðarsælu og líka hlusta á hana. Smelltu hér.
Uppskrift að þjóðarsælu
Messa, þjóðhátíðardaginn 17. júní kl. 11. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Textar dagsins með loforðum og heilræðum eru hér ef þú vilt skoða þá og íhuga. […]
Mesti heiður í lífinu
Það er nú einn það mesti heiður sem manni hlotnast í lífinu að starfa í sóknarnefnd! sagði Margrét Sigurðardóttir þegar hún var spurð hvort hún gæfi kost á sér. Já, já, ég er til“ sagði hún og svo var hún á aðalfundi sóknarinnar kosin til sóknarnefndarstarfa ásamt fjórum öðrum. [...]
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar var haldinn sunnudaginn 10. júní eftir messu safnaðarins. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf. Skýrsla um starfsemi safnaðarins lögð fram og reikningar. Einnig var kosið í sóknarnefnd. […]
Ég ætla að kaupa þessi augu!
Ránsaugu sjá ekki líf, en Guðsaugun sjá mannfólk og skyldur til góðs. Á hverju degi þurfum við að velja milli Mammons og Guðs. Horfðu vel í kringum þig og vertu ekki heimskingi. Prédikun sr. Sigurðar Árna 10. júní er að baki þessari smellu.