Fyrsta leikjanámskeið sumarsins er lokið og var ótrúlega skemmtilegur hópur sem það sótti. Búið er að setja helling af myndum frá námskeiðinu á myndasvæði æsklýðsstarfsins. Nú er í fullum gangi seinna júnínámskeiðið og eru 21 barn hjá okkur í kirkjunni þessa viku. Við minnum á að skráning er hafin fyrir námskeið III og IV sem eru fyrstu tvær vikurnar í ágúst.