Síðara leikjanámskeiði júnímánaðar lauk nú á föstudag og var það fullsótt með 22 þáttakendum. Hópurinn lék sér saman í kirkjunni, föndraði úr skeljum og kuðungum, heimsótti Árbæjarsafn og fór í rútuferð til Hveragerðis þar sem hverasvæðið var skoðað og sníktur ís í Kjörísverksmiðjunni. Að vanda tókum við fullt af myndum en næsta námskeið hefst mánudaginn 30. júlí og skráning er hafin á það. Við leiðtogarnir þökkum krökkunum fyrir frábær námskeið.