Guðsgaflar og puttabænir
Fingurnir eru mismunandi og hægt að nota þá til aðstoðar í samtalinu við Guð. Eðlisþættir puttanna geta minnt á mikilvæga þætti, sem við megum gjarnan orða við himinvin okkar. Þeir geta orðið okkur hinir þörfustu guðsgaflar. Prédikun Sigurðar Árna 17. maí er að baki smellunni!
Viðurkenningar fyrir skrúðatillögur
Nemendur í Listaháskólanum gerðu tillögur um skrúða fyrir Neskirkju. Í dag hlutu viðurkenningar þau Anton Kaldal Agústsson, Birna Einarsdóttir og Borghildur Ína Sölvadóttir. Verkefnið var samvinnuverkefni kirkjunnar og skólans. […]
Bænadagur – helgihald og fyrirlestur
17. maí er ekki bara þjóðhátíðardagur Norðmanna heldur bænadagur íslensku þjóðkirkjunnar. Í messunni í Neskirkju syngur Kór Neskirkju, Steingrímur stjórnar söng, Sigurður Árni þjónar fyrir altari og prédikar, Þórunn og Davíð Þór og Valdimar eru messuþjónar. Björg og Andrea stjórna barnastarfinu. Eftir messu verður kaffi. Anna Jóna Guðmundsdóttir flytur í [...]
Starfsskýrsla 2008 – 2009
Síðast liðinn sunnudag 10. maí var haldinn aðalsafnaðarfundur Nessóknar. Á fundinum var lögð fram starfsskýrsla sóknarinnar. […]
Paradís
Þú ert ekki búinn að setja á vefinn prédikunina um himnaríkið - manstu ræðuna um Línu langsokk! Í önnum hafði gleymst að setja prédikun frá 3. maí á netið. Að baki smellunni er paradísarprédikun.
Skálholt heillar
Opið hús verður á hjólum næsta miðvikudaginn, 13. maí! Farin verður vorferð í Skálholt. Brottför kl. 13 frá Neskirkju. Dr. Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla mun ræða um sögu staðarins. Kaffihlaðborð í Skálholtsskóla. Ferðin er í boði Neskirkju en veitingar í Skálholti greiða þátttakendur sjálfir. Skráning í Neskirkju, 511-1560.
Jákvæð sálfræði – fyrirlestur 17. maí
Anna Jóna Guðmundsdóttir heldur fyrirlestur um jákvæða sálfræði eftir messu í Neskirkju næsta sunnudag 17. maí. Anna Jóna er sálfræðikennari við Fjölbrautarskólann í Breiðholti. Á krepputíma er ráð að huga að hinu jákvæða og Anna Jóna getur varpað sínu fræðaljósi á málin. Fyrirlesturinn verður á Torginu og hefst kl. 12,30. [...]
Seðlabanki og lífið
Umhyggja, samfélagsábyrgð, samtryggingarafstaða hafa verið töluð niður. Á okkur hvílir nú sú afstaða að tala upp, hugsa upp, byggja upp siðvit og biðja upp traust, von og gleði. Skilaboð seðlabankans, hagstefna himinsins og stefna kirkjunnar fara saman. Prédikun Sigurðar Árna frá 10. maí er að baki smellunni.
Hanna Johannessen – minning og kveðja
Við upphaf útfarar Hönnu flutti Örn Bárður minningarbrot. Orð hans er bæði hægt að hlýða á og lesa á bak við þessa smellu. Sigurðar Árni flutti hina eiginlegu líkræðu og má nálgast hana í lok annarrar fréttar um Hönnu neðar á þessari síðu.
Til starfa
Hin lútherska þjóðkirkja leggur áherslu á hinn almenna prestsdóm. Í því felst ákveðin stefna lýðræðis í starfi kirkjunnar. Sunnudaginn 10. maí verður aðalfundur Nessóknar. Fundur hefst fljótlega eftir að messu lýkur. Verið velkomin til aðalfundar og starfa í söfnuðinum. Þín er þörf í starfi kirkjunnar.