Fréttir

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Fermingarmessa kl. 13.30

Messa og sunnudagaskóli kl. 11, sunnudaginn 23. apríl. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Fjallað verður um upprisu og dag jarðar. Umsjón með sunnudagaskóla hafa Stefanía Steinsdóttir, Katrín Helga Ágústsdóttir og Ari Agnarsson. Rebbi, Nebbi og fleiri líta við. Söngur og gleði. Fermingarmessa kl. 13.30.

By |2017-04-26T12:23:06+00:0020. apríl 2017 10:59|

Krossgötur 19. apríl

Krossgötur miðvikudaginn 19. apríl kl. 13.30. Sr. Skúli S. Ólafsson leiðir stundinna og talar um páska, vorið og siðbótina. Kaffiveitingar.

By |2017-04-18T11:49:57+00:0018. apríl 2017 11:49|

Páskadagur

Hátíðarmessa kl. 8. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið. Prestar kirkjunnar þjóna. Morgunkaffi og páskahlátur að messu lokinni. Fjölskylduguðsþjónusta og páskaeggjaleit kl. 11. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og Stefanía Steinsdóttir leiða stundina.

By |2017-04-11T11:34:48+00:0011. apríl 2017 11:34|

Föstudagurinn langi

Píslarsagan lesin og hugleidd kl. 11. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Í framhaldi fer fram, „Samtal um Gretar”, þar sem Ólafur Gíslason fjallar um sýningu Gretars Reynissonar, 20   40   60.

By |2017-04-11T19:20:15+00:0011. apríl 2017 11:29|

Skírdagur 13. apríl

Messa kl. 18. Messan hefst í kirkjunni en færist í hliðarsalinn að dúkuðu borði þar sem brauði og víni verður útdeilt og almennt borðhald. Rætt verður um tengsl altarisgöngunnar við páskamáltíð gyðinga og matarsamfélagið. Þau sem geta eru hvött til að leggja eitthvað til máltíðarinnar. Messunni líkur svo inni í kirkjuskipi. Kór Neskirkju syngur undir [...]

By |2017-04-11T11:28:56+00:0011. apríl 2017 11:28|

Helgihald yfir dymbilviku og páska

Skírdagur 13. apríl Messa kl. 18. Messan hefst í kirkjunni en færist í hliðarsalinn að dúkuðu borði þar sem brauði og víni verður útdeilt og almennt borðhald. Rætt verður um tengsl altarisgöngunnar við páskamáltíð gyðinga og matarsamfélagið. Þau sem geta eru hvött til að leggja eitthvað til máltíðarinnar. Messunni líkur svo inni í kirkjuskipi. Kór [...]

By |2017-04-10T15:24:14+00:0010. apríl 2017 15:24|

Neskirkja 60 ára!!!

Hátíðarmessa kl. 11 í tilefni 60 ára vígsluafmælis Neskirkju. Frumflutt verður ný messa eftir Steingrím Þórhallsson organista. Kór Neskirkju, Drengjakór Reykjavíkur og Barnakór Neskirkju syngja. Stjórnendur Steingrímur Þórhallsson og Jóhanna Halldórsdóttir. Sr. Skúli S. Ólafsson predikar og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar fyrir altari með þáttöku fermingarbarna, bæði frá 1957 og 2017, fyrrverandi Neskirkjupresta, prófasts [...]

By |2017-04-08T08:53:57+00:006. apríl 2017 13:51|

Matur og réttlæti

Á fræðslukvöldi um mat og föstu fimmtudaginn 6. apríl kl. 20.00 verður fjallað um matarframleiðslu og réttláta skiptingu. Hvernig má styrkja bændur í Eþíópíu til að efla matarframleiðslu? Hvernig getum við styrkt konur til að koma matvöru í verð? Hvað eru sanngjörn viðskipti og hvaða máli skipta vatn og loftslagsmál? Kristín Ólafsdóttir, upplýsingarfulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar [...]

By |2017-04-04T16:39:10+00:004. apríl 2017 16:29|

Krossgötur

Krossgötur miðvikudaginn 5. apríl kl. 13.30. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar um þjónustu og áhrif sem mótvægi við menningu ofbeldis og valda. Kaffiveitngar.

By |2017-04-04T11:53:19+00:004. apríl 2017 11:53|

Gretar Reynisson: 20 40 60 og 500 fingraför

Að lokinni guðsþjónustu þann 2. apríl kl. 11 opnar sýning Gretars Reynissonar á Torg. Á sýningunni verða til sýnis ljósmyndaverkið 20 40 60, sem kallast á við orð sköpunarsögu Biblíunnar: ,,Því að mold ert þú og til moldar skaltu aftur hverfa“ (1Mós 3:19) og tímamót í fortíð og nútíð listamannsins, og gjörningurinn 500 fingraför, þar [...]

By |2017-04-01T10:11:52+00:001. apríl 2017 08:16|