Fréttir

Messa 8. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11:00. Fjallað verður um þá kunnu féndur, Davíð og Golíat, en sagan sú geymir marga þræði sem freistandi er að leggja út af. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarfið er á sínum stað með söng og gleði. Kaffiveitingar á Torginu. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Kl [...]

By |2026-03-04T11:41:06+00:003. mars 2026 11:38|

Sjóferðasögur heilags Brendans

Krossgötur mánudaginn 2. mars kl. 13.00. Hjalti Snær Ægisson, rannsóknarlektor við Árnastofnun. Sjóferðasaga heilags Brendans hefur um langt skeið verið túlkuð hérlendis sem vitnisburður um „landnámið fyrir landnám“ og aðalpersónan gerð að nafngreindum fulltrúa þeirra írsku einsetumanna sem komu til Íslands löngu áður en samfelld byggð hófst. Staðreyndin er þó sú að Navigatio sancti Brendani [...]

By |2026-02-26T11:35:46+00:0026. febrúar 2026 11:35|

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 1. mars

Sunnudaginn 1. mars er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar og af því tilefni verður fjölskylduguðsþjónusta í Neskirkju kl. 11. Stúlknakór og Krílakór kirkjunnar syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar og Tinnu Sigurðardóttur. Verið hjartanlega velkomin til stundarinnar við fáum góða gesti í heimsókn og að venju verður söngur og gleði á stundinni.

By |2026-02-24T18:01:41+00:0024. febrúar 2026 17:50|

,,Allt sem þér viljið…”

Krossgötur mánudaginnn 23. febrúar kl. 13.00 Óli H. Þórðarson, fyrrum framkvæmdastjóri Umferðarráðs heldur erindið ,,Allt sem þér viljið…” Hugsjónir baráttumanns fyrir bættum samskiptum í umferðinni og víðar Óli H. Þórðarson lagði mikið af mörkum til að breyta hugarfari Íslendinga og hegðun á sviði umferðarmála. Vart er hægt að gera sér í hugarlund hversu mörgum mannslífum [...]

By |2026-02-20T09:39:07+00:0020. febrúar 2026 09:39|

Helgihald sunnudaginn 22. febrúar

Sunnudaginn 22. febrúar er fyrsti sunnudagur í föstu og þá verður messa og barnastarf kl. 11 í Neskirkju. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Barnastarf í safnaðarheimilinu á sama tíma. Verið hjartanlega velkomin.

By |2026-02-18T09:21:48+00:0018. febrúar 2026 09:21|

„Hér á ég heima“ – Vatnaskógur

Krossgötur mánudaginn 16. febrúar kl. 13.00. Dr. Gunnar Jóhannes Gunnarsson fjallar um sögu og áhrif sumarbúðianna í Vatnaskógi. En sumarbúðir KFUM og KFUK urðu 100 ára árið 2023. Af því tilefni var gefið út veglegt afmælisrit þar sem saga og uppbygging starfsins er rakin í máli og myndum. Í erindinu verður fjallað um þróun sumarbúðanna [...]

By |2026-02-13T11:42:35+00:0013. febrúar 2026 11:37|

Messa og barnastarf

Sunnudaginn 15. febrúar kl. 11 verða að venju messa og barnastarf í kirkjunni okkar. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og kór kirkjunnar syngur undir stjórn Maríu Kristínar Jónsdóttur. Kristrún, Karítas og Ari takk á móti börnunum í sunnudagaskólanum í safnaðarheimilinu á sama tíma.

By |2026-02-11T09:51:36+00:0011. febrúar 2026 09:40|

Jón biskup Arason í skrifum þjóðernissinna á 20. öld

Krossgötur mánudaginn 9. febrúar kl. 13.00. Einar Einarsson, sagnfræðingur og nýdoktor, flytur erind sem hann kallar Jón biskup Arason í skrifum þjóðernissinna á 20. öld. Söguskoðun Íslendinga tók stakkaskiptum um miðja nítjándu öld. Túlkun ýmissa lykilþátta Íslandssögunnar á borð við gamla sáttmála (1262), siðaskiptin (1550) og Kópavogsfundinn (1662) breyttist frá því að vera hlutlaus eða [...]

By |2026-02-06T14:25:31+00:003. febrúar 2026 11:46|

Messa 8. febrúar

Messa kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Barnastarfið á sínum stað með söng og leik. Kaffiveitingar á Torginu að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2026-02-03T10:40:50+00:003. febrúar 2026 10:40|

Messa og barnastarf sunnudaginn 1. febrúar.

Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarfið fer fram í safnaðarheimilinu á sama tíma í umsjá Kristrúnar og Karítasar.

By |2026-01-27T16:03:34+00:0027. janúar 2026 16:03|