Krossgötur mánudaginn 23. mars kl. 13.00. Sigjurjón Árni Eyjólfsson sendi í vetur frá sér ritið Abstrakt málverkið: Helgimynd íslenskrar menningar á 20. öld? Hann fjallar um bókina þar sem hann gerir óvenjulega tilraun til að flétta saman guðfræðilegar og listfræðilegar greiningaraðferðir og beita þeim í listsögulegu samhengi. Sigurjón Árni fjallar um listfræðilega umræðu um geómetríska abstraktlist á Íslandi, einkum verk Þorvaldar Skúlasonar og skrif hans og Harðar Ágústssonar. Hann sýnir fram á tengsl sjónarmiða þeirra við pólitískt uppgjör módernista og menningarlegra þjóðernissinna. Þá er grein Þorvaldar, „Nonfígúratív list“, ritskýrð með aðferðum hermeneutískrar textagreiningar. Sigurjón Ári færir sannfærandi rök fyrir því að abstraktmálverkið sé helgimynd íslenskrar menningar á 20. öld. Til þess beitir hann nýstárlegum rannsóknarforsendum þar sem skarast ólík fræðasvið. Skörp textagreining hans er mikilvæg viðbót við fyrri rannsóknir á íslenskri menningar- og listasögu. Sigurjón Árni Eyjólfsson, guðfræðingur og listfræðingur, er mörgum að góðu kunnur fyrir ritstörf sín á sviði hugvísinda. Abstraktmálverkið er tólfta bók hans. Hann hefur jafnframt skrifað fjölda ritrýndra fræðigreina og haldið ótal fyrirlestra og námskeið við háskóla í Þýskalandi og á Norðurlöndunum og einnig á vettvangi kirkjunnar þar sem hann er starfandi prestur. Kaffiveitingar.