Krossgötur mánudaginn 9. mars kl. 13.00.  Æsa Sigurjónsdóttir, prófessor, fjallar um Gerði Helgadóttur (1928-1975). Þegar Gerður kom til Parísar haustið 1949 þá varð hún fljótt þátttakandi í alþjóðlegum hópi listamanna sem setti mark sitt á þróun abstraktlistar eftirstríðsáranna. Rætt verður hvernig hugmyndir Gerðar um efni og andlega virkni birtast í verkum hennar, m.a. í kirkjugluggunum sem hún vann fyrir Neskirkju. Kaffiveitingar.