Fréttir

Annar í hvítasunnu

Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Steingrímur Þórhallsson organisti. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.

By |2007-05-26T15:48:56+00:0026. maí 2007 15:48|

Tungur í Neskirkju

Hátíðarmessa verður í Neskirkju á hvítasunnudag kl. 11. Í messunni verða lesnir ritningarlestrar á framandi tungum. Er með því vísað til reynslu manna í árdaga þegar fagnaðarerindið heyrðist flutt á mörgum tungum. […]

By |2007-05-24T14:23:28+00:0024. maí 2007 14:23|

Viltu hlusta eða lesa?

Prédikun sr. Arnar Bárðar Eilífð í nútíð og framtíð frá 20. maí 2007 er hér hvort sem þú vilt hlusta eða lesa.

By |2007-05-23T08:59:00+00:0023. maí 2007 08:59|

Velheppnuð vorferð í haustveðri

Veðurguðirnir voru okkur ekki hliðhollir í annars velheppnaðri vorferð sunnudagaskólans í gær. Við fórum eins og leiðin lá til Akranes þar sem við skoðuðum safnasvæðið og fengum leiðsögn safnvarðar um þá muni sem þar eru varðveittir. Eftir skoðunarferðina leituðum við skjóls frá rigningu, roki og hagléli inní á nýbyggðum gerfigrasvelli bæjarins og slógum þar upp [...]

By |2007-05-21T14:09:39+00:0021. maí 2007 14:09|

Vorferð barnastarfsins 20. maí

Sunnudagaskólinn og barnastarfið ætla að leggja land undir fót næstkomandi sunnudag. Við byrjum uppi í messu kl. 11 en förum síðan með rútu til Akraness um kl. 11.20 þar sem við skoðum safnasvæðið og grillum saman. Allir eru velkomnir með í bráðskemmtilega ferð í boði kirkjunnar. Börn verða að vera í fylgd með fullorðnum en [...]

By |2007-05-17T09:27:06+00:0017. maí 2007 09:27|

Uppstigningardagur með eldri borgurum

Guðsþjónusta á uppstigningardag kl. 14. Litli-kórinn, kór eldriborgara í Neskirkju, leiðir söng undir stjórn Ingu J. Backmann. Organisti Reynir Jónasson. Séra María Ágústsdóttir, héraðsprestur prédikar. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari.Kaffi og meðlæti eftir messu.

By |2007-05-15T18:59:04+00:0015. maí 2007 18:59|

Kossar, bæn og lífsvessar

Bænalífið er ekki aðeins í kirkju eða fyrirbænum, heldur líka í skóreimum, vindi, eldhúsi og bílaröðum á Miklubrautinni. Þar sem líf, fólk og veröld er, þar er Guð og samband. Úr prédikun sr. Sigurðar Árna á bænadeginum 13. maí.

By |2007-05-13T13:45:09+00:0013. maí 2007 13:45|

Ástin og bænin

Er faðmlag trúarlegt fyrirbæri? Getur verið að bæn sé faðmlag manns og Guðs? 13. maí er bænadagur þjóðkirkjunnar og í messunni í Neskirkju kl. 11 verður bæði beðið og bænaiðja íhuguð. Hvað er betra hægt að gera eftir kosningar? […]

By |2007-05-11T17:23:02+00:0011. maí 2007 17:23|