Sunnudagaskólinn og barnastarfið ætla að leggja land undir fót næstkomandi sunnudag. Við byrjum uppi í messu kl. 11 en förum síðan með rútu til Akraness um kl. 11.20 þar sem við skoðum safnasvæðið og grillum saman. Allir eru velkomnir með í bráðskemmtilega ferð í boði kirkjunnar. Börn verða að vera í fylgd með fullorðnum en áætluð heimkoma er um kl. 16.