Fréttir

Barnastarf og messa

Í messunni 7. september hefst barnastarf vetrarins. Félagar í Kór Neskirkju syngja undir stjórn kantors kirkjunnar. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, lektor og Þingvallaprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Að venju eru börnin í kirkjunni fyrsta hluta messunnar en fara síðan til sinna starfa í safnaðarheimili. Messan hefst kl. 11 og allir eru velkomnir til hátíðar [...]

By |2008-09-06T10:59:47+00:006. september 2008 10:59|

Barnastarf Neskirkju að hefjast.

Barnastarf Neskirkju hefst að nýju næsta sunnudag með fyrsta sunnudagaskóla vetrarins. Þá verður mikið um dýrðir og allir, ungir sem gamlir, eru velkomnir í á þessa upphafshátíð barnastarfsins. Í næstu viku hefst síðan allt barna- og unglingastarf kirkjunnar samkvæmt stundaskrá.

By |2008-09-02T14:03:45+00:002. september 2008 14:03|

Engar áhyggjur

Í messunni 31. ágúst verður prédikað út af fjallræðunni. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Meðhjálpari Rúnar Reynisson. Prestar Sigurður Árni Þórðarson, sem prédikar og Toshiki Toma. Fjallræðan og áhyggjuleysi trúarinnar. Veisla og allir velkomnir. Messan hefst kl. 11.

By |2008-08-29T14:15:25+00:0029. ágúst 2008 14:15|

Ferðasögukvöld í kvöld.

Í kvöld, þriðjudaginn 26. ágúst kl 20.00, verður haldið ferðasögukvöld. Þar mun hópurinn úr unglingastarfi Neskirkju sem sótti Evrópumót KFUM í Prag nú í ágúst segja frá ferð sinni í máli og myndum. Allir eru velkomnir og eru fjölskyldur Pragfara sérlega hvattar til að koma.

By |2008-08-26T11:09:19+00:0026. ágúst 2008 11:09|

Messa 24. ágúst kl. 11 – Til hamingju með gullið!

Kennarar af fermingarnámskeiðinu sem haldið var í liðinni viku munu þjóna við messuna, lesa ritningarlestra og bænir og aðstoða við útdeilingu sakramentisins. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Væntanleg fermingarbörn sem frædd voru í liðinni viku fá að ganga til altaris í fyrsta sinn ásamt foreldrum sínum [...]

By |2008-08-23T13:40:40+00:0023. ágúst 2008 13:40|

Dauði eða kirkja lífs

Til hvers reglur? Trúarlíf, kirkjulíf, guðsdýrkun eru á villigötum, ef náunginn gleymist. Fagrir helgisiðir eru til lítils, ef menn deyja við heimreiðar kirkna. Prédikun sr. Sigurðar Árna 17. ágúst er á bak við þessa smellu.

By |2008-08-19T21:17:58+00:0019. ágúst 2008 21:17|

Hólar og Jeríkó

Þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Þann dag er Hólahátíð og á þeim degi er íhuguð hættuför til Jeríkó. Hún er tákn fyrir ævigöngu okkar allra. Þetta verður íhugað í messunni 17. ágúst, kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Meðhjálpari Rúnar Reynisson og messuþjónn dr. Pétur Pétursson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar [...]

By |2008-08-16T21:13:23+00:0016. ágúst 2008 21:13|

Myndir frá Prag.

Komnar eru myndir frá fyrstu 5 dögunum í Prag. Við minnum á Ferðasögukvöldið þriðjudaginn 19. ágúst kl. 20.00, þar sem öllum er boðið að heyra um ferð unglingastarfsins á Evrópumót KFUM í Prag. Njótið myndanna.

By |2008-08-16T15:57:15+00:0016. ágúst 2008 15:57|

Leikjanámskeiðum sumarsins að ljúka

Leikjanámskeið sumarsins ljúka í dag eftir velheppnað sumar. Um 70 börn hafa sótt námskeiðin hjá okkur í sumar sem hafa verið fjölbreytt og skemmtileg. Í vikunni (á námskeiði IV) höfum við heimsótt Árbæjarsafn, silgt út í Viðey, skoðað Safn Einars Jónssonar og fræðst um boðskap kirkjunnar í leik og starfi. Myndasíðan okkar geymir fullt af [...]

By |2008-08-15T00:00:00+00:0015. ágúst 2008 00:00|

Fermingarfræðslan í Neskirkju er að hefjast!

Sumarnámskeið hefst með sameiginlegum fundi fermingarbarna og foreldra þeirra eða forsjármanna í Neskirkju sunnudaginn 17. ágúst kl. 20. Fundað verður í kirkjunni. Þar verður efni og fræðslufyrirkomulag kynnt. […]

By |2008-08-14T12:09:29+00:0014. ágúst 2008 12:09|