Í messunni 7. september hefst barnastarf vetrarins. Félagar í Kór Neskirkju syngja undir stjórn kantors kirkjunnar. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, lektor og Þingvallaprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Að venju eru börnin í kirkjunni fyrsta hluta messunnar en fara síðan til sinna starfa í safnaðarheimili. Messan hefst kl. 11 og allir eru velkomnir til hátíðar og hinnar himnesku veislu.