Fréttir

Er hann góður maður?

Kærleikurinn í KR, dýrlingamyndir í fótboltanum og manngæska Messi! Eru íslensku landsliðskonurnar og snillingar álfukeppninnar góðar manneskjur? Þroskuð og öflug? Kunna þau skil á réttu og röngu, stilla eigin þörfum í hóf og taka tillit til annarra, maka, ástvina og samfélags? Prédikun Sigurðar Árna 28. júlí, 2013, er að baki þessari smellu.

By |2013-07-29T16:08:14+00:0029. júlí 2013 16:08|

Ábyrgð og messa 28. júlí

"Er hann góður maður?" Af samhengi spurningarinnar vaknaði íhugun sem ratar í prédikunina sunnudaginn 28. júlí. Félagar úr kór Neskirkju syngja og meðhjálpari verður Rúnar Reynisson. Sigurður Árni Þórðarson messar. Kaffi á Torginu eftir messu sem hefst kl. 11. Allir velkomnir.

By |2013-07-25T21:49:39+00:0025. júlí 2013 21:49|

Skálholtsjárnið

Er hljómundur kirkjunnar það sem skilgreinir Skálholt? Er kannski fræðslustarf Skálholtsskóla mikilvægast? Eða menningartúlkun fyrir ferðamenn það sem skilgreinir framtíð staðarins? Hvað er mikilvægast í Skálholti? Svarið er tengt þér. 21. júlí var 8. sunnudagur eftir þrenningarhátíð og Skálholtshátíðardagur. Prédikun Sigurðar Árna þennan dag má nálgast á slóðunum trú.is og sigurdurarni.is.

By |2017-04-26T12:23:25+00:0025. júlí 2013 08:57|

Kökukraftaverk Caroline

Í lok messunnar í Neskirkju 21. júlí hvatti ég söfnuðinn að venju að staldra við á Torginu eftir messu. Ég lét þess einnig getið að kosturinn yrði horandi því kirkjuvörðurinn, Valdimar Tómasson, hafði sagt mér að hann hefði ekkert annað en saltstangir til að setja fram með kaffinu! Svo fóru flestir úr kirkju í messukaffið. [...]

By |2017-04-26T12:23:25+00:0021. júlí 2013 22:58|

Messan 21. júlí og allir velkomnir

Hvernig er byggt, hvernig er sökkull og hvað merkir það í þínu lífi? Þetta er umfjöllunarefni í guðspjalli Jesú um húsin tvö, annað sem byggt var á sandi og hitt sem grundvallað var á bjargi. Sunnudaginn 21. júlí messar Sigurður Árni Þórðarson. Félagar úr kór Neskirkju syngja og meðhjálpari Valdimar Tómasson. Allir velkomnir og messa [...]

By |2013-07-19T21:02:18+00:0019. júlí 2013 21:02|

Stóra sagan

Sumarleyfamyndum er smellt inn á facebook, Instagram, Flickr og aðra ljósmyndavefi. Svo eru ferðasögurnar. Þær sögur eru oft sjálfslýsingar og fara ekki á facebook. En svo er stóra sagan. Hugleiðingu Sigurðar Árna í messunni 14. júlí 2013 er hægt að lesa bæði á tru.is og sigurdurarni.is.

By |2017-04-26T12:23:25+00:0015. júlí 2013 14:57|

Messan 7. júlí

Alla helga daga er messað í Neskirkju. Sunnudaginn 7. júlí messar Sigurður Árni Þórðarson. Meðhjálpari Rúnar Reynisson og félagar úr kór Neskirkju syngja. Allir velkomnir og messa hefst að venju kl. 11.

By |2013-07-07T10:05:03+00:007. júlí 2013 10:05|

Óskaganga á Helgafell

„Er þetta satt pabbi?“ Ef maður klúðrar einhverju rætast þá ekki óskirnar? Ef maður lítur óvart aftur eða gleymir að signa yfir leiðið er þá ferðin til einskis eða jafnvel ills? Textar 5. sunnudags eftir þrenningarhátíð varða ferð - lífsferð. Í hugleiðingu dagsins var rætt um ferðalag og óskir lífisins, göngu á Helgafell í samnefndri [...]

By |2017-04-26T12:23:25+00:002. júlí 2013 11:17|

Messa 30. júní

Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélaga og kaffisopi eftir messu á Torginu.

By |2013-06-28T14:33:27+00:0028. júní 2013 14:33|

Goðsögnin um Kain og Abel

Mannhelgin nær jafnvel til þess sem fyrirgert hefur rétti sínum til að lifa í samfélagi manna með hegðun sinni og þar með til okkar sem erum breisk og buguð af minni misgjörðum en Kain. Prédikun sr. Sigurvins sunnudaginn 23. júní.

By |2017-04-26T12:23:25+00:0024. júní 2013 09:54|