Hvernig er byggt, hvernig er sökkull og hvað merkir það í þínu lífi? Þetta er umfjöllunarefni í guðspjalli Jesú um húsin tvö, annað sem byggt var á sandi og hitt sem grundvallað var á bjargi. Sunnudaginn 21. júlí messar Sigurður Árni Þórðarson. Félagar úr kór Neskirkju syngja og meðhjálpari Valdimar Tómasson. Allir velkomnir og messa hefst að venju kl. 11.