Í lok messunnar í Neskirkju 21. júlí hvatti ég söfnuðinn að venju að staldra við á Torginu eftir messu. Ég lét þess einnig getið að kosturinn yrði horandi því kirkjuvörðurinn, Valdimar Tómasson, hafði sagt mér að hann hefði ekkert annað en saltstangir til að setja fram með kaffinu! Svo fóru flestir úr kirkju í messukaffið. En sjá, kökukraftaverkið mikla varð.

 

Caroline býr í London og var í heimsókn hjá systur sinni sem býr á Hjarðarhaga. Þær systur komu í kirkju og þeirra fólk. Caroline bakaði þrjár tertur og kom með þær í kirkju – söfnuðinum til mikillar gleði.

Droplaug Guðnadóttir sóknarnefndarformaður var í kirkju, kynnti undrið og þakkaði Caroline kraftaverkakökurnar og allir klöppuðu. En þar sem presturinn lofaði horandi fæði var niðurstaðan að þetta væru slim-cakes sem hefðu heilsusamleg áhrif, sem reyndist rétt.

Caroline dreymir um að flytjast til Íslands og stofnsetja bakarí og mig dreymir um að hún geti selt kökurnar sínar í Neskirkju. Enn lifir bragðið í munni og gleðin yfir kökundrinu hríslast um mig hið innra. “Þú þjónar til borðs” sagði hún – “og ég líka” bætti hún við og brosti hógværðarlega.

Guð varðveiti Caroline alla daga og Guð laun fyrir þetta brauð frá himni.