Messa og sunnudagaskóli 15. september
Sunnudaginn 15. september er messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðni Þór Ólafsson prestur á Melstað tekur þátt í messunni, predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Steinunni A. Björnsdóttur. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sunnudagaskólinn er í umsjá Rúnars Reynissonar og [...]
Krossgötur
Krossgötur hefjast á morgun þriðjudaginn 10. september kl. 13.00. Þá kemur Kristján Gíslason heimshornaflakkari og segir okkur ferðasögur úr heimsreisu. Samfélag, kaffi og kruðerí! Dagskrá haustsins!
Messa 8. september
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Söngur, sögur, gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét H. Atladóttir og Ari Agnarssson. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.
Sunnudagskólinn að byrja
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Fyrsti sunnudagaskóli vetrarins. Söngur, leikur, sögur. Umsjón hefur vaskur hópur: Katrín H. Ágústsdóttir, Margrét H. Atladóttir, Gunnar T. Guðnason og Ari Agnarsson sem leikur undir söng. Í messunni syngur kór Neskirkju og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir [...]
Messa 25. ágúst
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Fermingarfræðsla
Á morgun, fimmtudaginn 15. ágúst, hefst fermingarfæðslan hér í Neskirkju. Kynningarfundur vegna starfsins framundan verður miðvikudaginn 14. ágúst kl. 20. Þar verður farið yfir dagskrá vetrarins og ýmis praktísk mál og spurningum svarað. Aðalnámskeiðið er síðan haldið í ágúst og verður dagana 15, 16., 19. og 20. ágúst frá 10 – [...]
Messa og opnun sýningarinnar Regnbogabraut
Sunnudaginn 11. ágúst verður messa kl. 11 og opnun sýningarinnar “Regnbogabraut: Falin saga í 1200 ár”. Í messunni munu félagar úr kór Neskirkju leiða söng við undirleik Rósu Kristínar Baldursdóttur. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Að venju leggjum við áherslu á að allir eru velkomnir í messuna, ungir sem [...]
Íhugunarmessa um verslunarmannahelgi
Um verslunarmannahelgi verður messað kl. 11 á sunnudag að venju. Að þessu sinni verður notað einfalt messuform og við íhugum 23. Davíðssálm, Drottinn er minn hirðir. Félagar úr kór Neskirkju leiða sönginn, prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Hressing og samfélag á kirkjutorgi eftir messu að vanda. Allir hjartanlega velkomnir, [...]
Prjónamessa þann 28. júlí
Prjónamessa kl. 11 þann 28. júlí. Messan er hefðbundin en fólki er boðið að koma með handavinnuna og prjóna, hekla eða sauma í messunni. Textar, sálmar og predikun tengjast þemanu og Halldóra Sigríður Steinhólm Bjarnadóttir og Jóhanna Elin Guðmundsdóttir, félagar í prjónahópi Neskirkju aðstoða við messuna. Félagar úr Kór Neskirkju [...]
Messa 21. júlí
Messa kl. 11 sunnudaginn 21. júlí. Viðfangsefni textanna er spurning Jesú: Hvern segið þér mig vera? Árni Þór Þórsson guðfræðinemi predikar og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Allir hjartanlega velkomnir. Blöð og litir í boði fyrir yngstu kynslóðina. Hressing og samfélag á [...]