Næskomandi sunnudag, 13. Október kl. 11,  prédikar Peter-Fischer Möller, Hróarskeldubiskup, í Neskirkju. Peter-Fischer Möller hefur gegnt embætti biskups í Hróarskeldu síðan 2008. Hann situr í framkvæmdastjórn kirkjuráðs í Danmörku og er virkur í starfshópi um Græna kirkju www.gronkirke.dk Hann hefur verið áberandi í Danmörku og annarsstaðar á Norðurlöndum í umræðum um náttúruvernd, lífræðilega fjölbreytni, loftslagsbreytingar og sjálbærni. Ekki að ósekju sem hann er stundum nefndur græni biskupinn. Peter-Fischer Möller er á Íslandi í boði Stofnunar Sigurbjörns Einarssonar. Hann tekur þátt í Skálholtsráðstefnu um „Umhverfissiðbót í þágu jarðar“ og í málstofu Hringborðs norðurslóða í Hörpu um „Siðbót í þágu sjálfbærnimarkmiða Sameinuðu þjóðanna“. Málstofan verður í Safnahúsinu, Hverfisgötu 15, kl. 17 föstudaginn 11. október næstkomandi.

Fyrr um morguninn, kl. 09:30, heldur Peter-Fischer Möller fyrirlestur í Hallgrímskirkju sem ber yfirskriftina; „Græna kirkjan í Danmörku“