Heimsókn á Njáluslóðir
Krossgötur þriðjudaginn 1. október. Krossgötufólk heldur í langferð á vettvang þessarar mögnuðu Íslendingasögu. Þetta verður fróðlegur og skemmtilegur dagur og auðvitað njótum við góðra kaffiveitinga. Lagt verður af stað frá Neskirkju kl. 13.00. Ferðinn kostar 3.000 kr. Farastjóri er Guðbjörn Sigurbjörnsson.
Örnámskeið um Biblíuna 28. september
Hvers konar bók er Biblían? Eða hvers konar ritsafn, því að hún er samsafn bóka. Hvenær var hún skrifuð? Hverjir skrifuðu hana? Hvers vegna? Stutt námskeið verður um Biblíuna, gerð, tilurð og túlkun í safnaðarheimili Neskirkju laugardaginn 28. september kl. 10 - 12. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Kennarar eru [...]
Fjölskylduguðsþjónusta 29. september
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Létt tónlist, saga, íhugun og rými þar sem við getum valið svæði, samið bæn, þegið blessun, kveikt á kerti og fleira. Boðið verður upp á bangsablessun fyrir þau sem koma með mjúkleikföngin. Sr. Steinunn A. Björnsdóttir leiðir stundina ásamt starfsfólki sunnudagaskólans og Ari Agnarsson leikur undir. Hressing [...]
Stjúpur í ævintýrum
Krossgötur þriðjudaginn 24. september kl. 13.00. Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur og starfar á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, segir frá vondum og góðum stjúpum. Kaffi og kruðerí.
Uppskerumessa
Uppskerumessa 22. september kl. 11. Messan er helguð gjöfum jarðar. Þakkir færðar í tali og tónum. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Kór Neskirku syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét H. Atladóttir og Ari Agnarssson. Grænmetissúpa úr aldingarði [...]
Njáluslóðir
Krossgötur þriðjudaginn 17. september kl. 13. Guðbjörn Sigurbjörnsson, kennari og farastjóri fjallar um Njálu og undirbýr okkur fyrir ferð á slóðir hennar! Kaffi og kruðerí!
Messa og sunnudagaskóli 15. september
Sunnudaginn 15. september er messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðni Þór Ólafsson prestur á Melstað tekur þátt í messunni, predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Steinunni A. Björnsdóttur. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sunnudagaskólinn er í umsjá Rúnars Reynissonar og [...]
Krossgötur
Krossgötur hefjast á morgun þriðjudaginn 10. september kl. 13.00. Þá kemur Kristján Gíslason heimshornaflakkari og segir okkur ferðasögur úr heimsreisu. Samfélag, kaffi og kruðerí! Dagskrá haustsins!
Messa 8. september
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Söngur, sögur, gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét H. Atladóttir og Ari Agnarssson. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.
Sunnudagskólinn að byrja
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Fyrsti sunnudagaskóli vetrarins. Söngur, leikur, sögur. Umsjón hefur vaskur hópur: Katrín H. Ágústsdóttir, Margrét H. Atladóttir, Gunnar T. Guðnason og Ari Agnarsson sem leikur undir söng. Í messunni syngur kór Neskirkju og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir [...]