Hátíðarmessa fyrsta sunnudag í aðventu
Fyrsta sunnudag í aðventu er hátíðarmessa og barnastarf kl. 11 í Neskirkju. Drengjakór Reykjavíkur syngur, undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar, ásamt Kór Neskirkju. Stjórnandi og organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét Heba Atladóttir og Ari Agnarsson. [...]
Messa og sunnudagaskóli 24. nóvember – Kirkjuáramót
Messa og sunnudagaskóli kl. 11 þann 24. nóvember sem er síðasti sunnudagur kirkjuársins - gamlársdagur kirkjurársins. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Söngur og sögur í sunnudagaskólanum sem er í umsjá Margrétar Hebu Atladóttur, Gunnars Th. Guðnasonar [...]
Konurnar í Biblíunni
Krossgötur þriðjudaginn 19. nóvember kl. 13. Skúli S. Ólafsson, prestur í Neskirkju, fjallar um konur í Biblíunni. Fjallað verður sérstaklega um Evu, Rut og Söru. Söngur og kaffiveitingar að hætti húsins.
Messa 17. nóvember
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Háskóla kórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Söngur, gleði og gaman í barnastarfinu. Umsjón Katrín H. Ágústsdóttir, Ágúst Þór Þórsson og Ari Agnarsson. Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir messu.
Ættfræðigrúsk
Krossgötur þriðjudaginn 12. nóvember kl. 13.00. Stefán Halldórsson, ættfræðingur, fjallar um ættfræðigrúsk á tölvuöld. Kaffiveitingar og söngur.
Messa og opnun listsýningar
Sunnudaginn 10. nóvember verður messa, barnastarf og opnun listsýningar Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur kl. 11. Félagar í Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Fjallað verður um sýningu Önnu Júlíu, Ég hef misst sjónar á þér, í predikun. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, gleði og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón [...]
Ég hef misst sjónar af þér
Sunnudaginn 10. nóvember kl. 12 opnar einkasýning Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur Ég hef misst sjónar af þér í Safnaðarheimili Neskirkju. Hluti sýningarinnar teygir anga sína yfir til gömlu Loftskeytastöðvarinnar á Brynjólfsgötu, skrifstofuhúsnæði Náttúruminjasafns Íslands, þar sem eitt verkanna er sýnt á þakkanti hússins. Á sýningunni gerir Anna Júlía samband manns og náttúru [...]
Næring og hollusta
Krossgötur þriðjudaginn 5. nóvember kl. 13.00. Ólöf Guðný Geirsdóttir, dósent og verkefnastjóri í öldrunarfræðum fjallar um næringu og hollustu. Kaffiveitingar og söngur!
Regnbogamessa
Sunndaginn 3. nóvember kl. 18 er komið að sýningarlokum á Torginu í Neskirkju en þá tökum við niður verk listafólksins Viktoríu Guðnadóttur, Hrafnkels Sigurðssonar og Logns Draumland. Af því tilefni efnum við til Regnbogamessu í Neskirkju og að henni lokinni gefst fólki kostur á að ganga um Torgið og virða [...]
Matthías Jochumsson
Krossgötur þriðjudaginn 29. oktkóber kl. 13.00. Gunnar Kristjánsson, doktor í guðfræði kemur í heimsókn og fjallar um mótun Matthíasar Jochumssonar. Kaffiveitingar.