Iðunn Steinsdóttir
Krossgötur þriðjudaginn 19. febrúar kl. 13.00. Iðunn Steinsdóttir, rithöfundur, segir frá bók sinni um langafa sinn Hrólf Hrólfsson, bókelskan sveitar- ómaga og vinnumann á 19. öld. Kaffiveitingar og söngur.
Krossgötur þriðjudaginn 19. febrúar kl. 13.00. Iðunn Steinsdóttir, rithöfundur, segir frá bók sinni um langafa sinn Hrólf Hrólfsson, bókelskan sveitar- ómaga og vinnumann á 19. öld. Kaffiveitingar og söngur.
Þann 17. febrúar verður messa og sunnudagaskóli kl. 11 að venju. Við söfnumst saman í kirkjunni og eftir sameiginlegt upphaf skunda börnin í safnaðarheimilið þar sem Gunnar Thomas Guðnason, Ari Agnarsson og sr. Skúli S. Ólafsson halda uppi fjörinu. Í messunni syngur Háskólakórinn undir stjórn Douglas Brotchie sem leikur einnig á orgel. Prestur er sr. [...]
Krossgötur þriðjudaginn 12. ferbrúar. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson, prestur í Grafarvogskirkju, kemur í heimsókn og fjallar um kristna íhugun, Jesú jóga. Kaffiveitingar og söngur!
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Sögur, söngur, gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Gunnar Tómas Guðnason og Ari Agnarsson. Kaffi sopi og samfélag á Torginu eftir messu.
Næsta fimmtudag 7. febrúar kl. 18 verður þriðja Skammdegisbirtu daskráin. Boðið verður upp á barokk ábreiður, sagt frá fjölbreyttum listferli Gerðar Helgadóttur og ljóðskáldið Haukur Ingvarsson veltir fyrir sér spurningum sem varða trú og trúleysi. Og svo verður að venju boðið upp á súpu og drykki. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar má sjá hér!
Krossgötur þriðjudaginn 5. febrúar kl. 13.00. Kristjana M. Sigmundsdóttir og Þorlákur Helgi Helgason, baráttufólk gegn einelti. Elta minningarnar okkur ævina út? Um einelti í æsku. Kaffiveitingar.
Sunnudagurinn 3. febrúar er bænadagur að vetri. Þann er er að venju messa og sunnudagaskóli kl. 11. Við hefjum stundirnar saman inni í kirkju en barnastarfið færir sig síðan yfir í safnaðarheimilið. Kór Neskirkju syngur í messunni og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Barnastarfið [...]
Dagsnámskeið um Kyrrðarbæn (Centering Prayer) verður haldið í Neskirkju þann 2. febrúar frá kl. 10 – 15. Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð. Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem gengur út á að hvíla í nærveru Guðs [...]
Krossgötur þriðjudaginn, 29. janúar kl. 13.00. Sýningin Kirkjur Íslands opnar í Þjóðminjasafninu í tilefni þess að lokið er útgáfu samnefndrar ritraðar. Þar er að finna merkilegar myndir og heimildir af íslenskum kirkjum. Hópurinn hittist fyrst í Neskirkju og fær sér hressingu.
Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúi S. Ólafsson. Sögur, söngur, gleði og gaman í sunnudagaskólanum. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Margrét Heba Atladóttir og Ari Agnarsson. Umsjón Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.