Fermingarstarf Neskirkju hefst með kynningarfundi sunnudaginn 16. ágúst kl. 18.30-19. Fundurinn er bæði fyrir foreldra og börn.

Að venju verður sumarnámskeið: Mánudaginn 17. – fimmtudagsins 20. ágúst milli kl. 10 – 15

Skráning í fermingarfræðslu og Vatnaskóg fer fram hér á Abler.

Námskeið fyrir þau sem ekki sækja námskeiðið 16.-20. ágúst verður auglýst síðar.

Ferðalag í Vatnaskóg 
Helgina 11. – 13. september eru drengirnir í Vatnaskógi.
Helgina 18. – 20. september eru stúlkurnar í Vatnaskógi.

Lagt verður af stað frá Neskirkju kl. 17. Komið heim seinnipartinn á sunnudeginum. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag ferðanna verða veittar á foreldrafundi fimmtudaginn 11. september kl. 18.