Fréttir

Pálmasunnudagsmessa kl. 11

Á pálmasunnudag er venjuleg messa og barnamessa kl. 11 og þá verður 52 ára afmæli Neskirkju minnst. Ekki er fermt í Neskirkju á venjulegum messtíma. Félagar úr kór Neskirkju syngja, Steingrímur spilar, messuhópur þjónar og sr. Sigurður Árni prédikar í sunnudagsmessunni. Eftir hádegi á pálmasunnudag verður fermingarmessa, sú þriðja þetta vorið.

By |2009-04-03T18:00:25+00:003. apríl 2009 18:00|

Jón Axel, saltfiskur og borðræða

Föstudaginn 3. apríl kl. 12 verður opnuð sýning á verkum Jóns Axels Björnssonar myndlistarmanns í safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg. Síðasta saltfiskmáltíð þessarar föstu verður síðan og að venju verður borðræða – dr. Sigríður Guðmarsdóttir ræðir um viðsnúning. Allir velkomnir. […]

By |2009-04-03T09:18:04+00:003. apríl 2009 09:18|

Páskastemning í barna- og unglingastarfi Neskirkju

Barna- og unglingastarf Neskirkju er á fullu að undirbúa páskahátíðina. Í sunnudagaskólanum verður hefðbundinn sunnudagaskóli á Pálmasunnudag og síðan er stefnt á páskaeggjaleit í garði Neskirkju á Páskadagsmorgun kl. 11. Unglingastarfið hélt veglegt páskaeggjabingó s.l. þriðjudag og tóku hátt í 50 ungmenni þátt í því en gestir úr MeMe, æskulýðsfélagi Digraneskirkju, komu í heimsókn. Þá [...]

By |2009-04-02T18:32:51+00:002. apríl 2009 18:32|

Fönix í heimsókn á Selfoss

Síðastliðinn laugardag,þann 28. mars, heimsótti Fönix Selfosskirkju og hitti ungmenni úr Molunun, æskulýsfélagi Skálholtsdómkirkju og Kærleiksbjörnunum, æskulýðsfélagi Selfosskirkju. Krakkarnir fóru í leiki og þrautir á laugardeginum og fengu fræslu um mikilvægi þess að hafa sýna trú sína í verki og breyta heiminum til batnaðar. Hópnum var skipt í þrennt og þau völdu sjálf málefni sem [...]

By |2009-03-31T12:04:43+00:0031. mars 2009 12:04|

Græðgi er góð!

Hlutverk kirkjunnar er ekki síður að minna á að hinn valdalausi er ófær um að beita þann við völd einelti. Minna á að hinn valdalausi krossfestir ekki þann valdameiri, það er ávallt hinn valdalausi sem finnur þjáninguna og eineltið á eigin skinni. Prédikun sr. Guðbjargar 29. mars er að baki smellunni.

By |2009-03-30T00:42:00+00:0030. mars 2009 00:42|

BreytEndur í heimsókn í NeDó.

Changemakers eða BreytEndur, eru ungliðahreyfing innan Hjálparstarfs Kirkjunnar sem hefur það að markmiði að vera rödd ungs fólks fyrir réttlátari heim. Fulltrúar þeirra komu á NeDó fund s.l. fimmtudag (26. mars) og töluðu við krakkana um leiðir til að breyta heiminum. NeDó leiðtogarnir hafa lengi rætt sín á milli að vilja hafa hjálpar- og hugsjónastarf [...]

By |2009-03-27T00:00:00+00:0027. mars 2009 00:00|

Saltfiskur og borðræð föstudaginn 27. mars.

Fastan er tími íhugunar. Val á hráefni í föstumat hefur ekki aðeins stjórnast af þörfum líkamans heldur líka hins innri manns. Í þeim anda verður saltfiskur framreiddur í Neskirkju á föstudaginn kemur. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir mun fjalla um fyrirgefninguna í borðræðu dagsins. Máltíð hefst um kl. 12.

By |2009-03-26T11:41:29+00:0026. mars 2009 11:41|

Opið hús, miðvikudaginn 25. mars

Opið hús kl. 15. ÞJóðmálaumræða. Sr. Baldur Kristjánsson sóknarprestur og nefndarmaður í þjóðmálanefnd Þjóðkirkjunnar: „Hve víðfem er náð Guðs? - Kirkjan og mannlífið“. Opið hús er alla miðvikudaga og byrjar með kaffiveitingum á Torginu kl. 15.

By |2009-03-25T10:14:59+00:0025. mars 2009 10:14|

Starfsfólk leikskóla á fræðsludegi í Neskirkju

Starfólk leikskóla í Vesturbæ sótti námskeiðsdag í Neskirkju síðastliðinn mánudag, 23. mars, og voru yfir eitt hundrað þátttakendur á deginum. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir fjallaði um átök og álag á vinnustöðum í erindi sem bar heitið Þegar mann langar bara að garga og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir fjallaði um sorgarferli í tengslum við áföll í ljósi [...]

By |2009-03-25T00:00:00+00:0025. mars 2009 00:00|

Segðu satt

Jæja, ef það sem þú vildir segja mér er ekki satt, ekki gott og ekki heldur gagnlegt af hverju ættir þú þá að segja mér þessa sögu? Prédikun sr. Sigurðar Árna út af áttunda boðorðinu í Neskirkju 22. mars, 2009 er að baki smellunni.

By |2009-03-24T19:36:19+00:0024. mars 2009 19:36|