Fréttir

Árshátíð NeDó og Fönix

Síðastliðinn þriðjudag var haldin sameiginleg árshátíð fyrir æskulýðsfélög Neskirkju, Fönix og NeDó. Um 40 ungmenni á aldrinum 14-19 ára mættu prúðbúin og snæddu dýrindis kjúklingarétt sem var matreiddur af Ólafíu á Kaffitorgi Neskirkju. Veislustjóri var sr. Bolli Pétur Bollason, prestur í Laufási, en hann var einn af stofnendum NeDó fyrir rúmum áratug. Krakkarnir sýndu margvísleg [...]

By |2009-03-24T19:12:21+00:0024. mars 2009 19:12|

Bannað að skrökva

Sunnudaginn 22. mars verður í Neskirkjumessunni hugað að boðinu: Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum. Kór Neskirkju syngur og Steingrímur spilar. Barnastarfið byrjar í kirkjunni um leið og messan kl. 11. Messuhópur: Guðrún, Valdimar, Helga og Guðrún. Prestar Toshiki og Sigurður Árni, sem prédikar. Siguvin, Ari, María, Alexandra og fl. stýra barnastarfinu. Súpa [...]

By |2009-03-20T19:01:14+00:0020. mars 2009 19:01|

Opið hús – Leiklist

Opið hús miðvikudaginn 18. mars kl. 15. Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona og fleiri koma í heimsókn og fjalla um leiksýninguna: Óskar og bleikklædda konan, en verkið er sýnt í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi dagskrár.

By |2009-03-17T09:21:31+00:0017. mars 2009 09:21|

Hórdómur og von um hamingju

„Svona, svona Guðmundur minn það þarf varla að rifja það upp fyrir þér að þú varst nú enn í hjónabandi með annarri konu þegar við fórum að vera saman.“ Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir ræddi um sjötta boðorðið í messunni 15. mars, 2009. Prédikun hennar er að baki smellunni.

By |2009-03-16T21:05:17+00:0016. mars 2009 21:05|

Messa 15. mars

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Magnús Ragnarsson. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Prédikun dagsins fjallar um sjötta boðorðið: Þú skalt ekki drýgja hór. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón Sigurvin, María, Andrea og [...]

By |2009-03-13T17:04:55+00:0013. mars 2009 17:04|

Elskuseðlar Neskirkjufólks

Í messunni 8. mars voru miðar á sálmabókum. Þeir voru til að skrifa á vonir, bænir, áætlanir um það sem við getum gert til að bregðast við kreppunni. Fólk hengdi svo miðana á glerið við brúna milli kirkju og safnaðarheimilis. Elskusemin og umhyggjan skín í gegn. Þetta eru merkismiðar fyrir upprisu Íslands. […]

By |2009-03-12T15:15:15+00:0012. mars 2009 15:15|

Satfiskur og viðsnúningur

Á föstudögum á föstunni er boðið upp á saltfisk í hádeginu á Torgi Neskirkju. Borðhald hefst um kl. 12. Kl. 12,30 verða fluttar stuttar borðræður, sem þjóna áherslu föstunnar á hreinskilni. Ytri aðstæður okkar Íslendinga hvetja til breytinga eða viðsnúnings. Föstudaginn 13. mars mun dr. Sigríður Guðmarsdóttir flytja ör erindi sem kallast Viðsnúningur. [...]

By |2009-03-12T11:48:56+00:0012. mars 2009 11:48|

Opið hús – Guðríðarkirkja

Miðvikudaginn 11. mars verður farið í vettvangsferð og nýja kirkjan í Grafarholti, Guðríðarkirkja, heimsótt. Kirkjan er sú fyrsta á Íslandi sem ber nafn konu. Dr. Sigríðar Guðmarsdóttir, sóknarprestur, segir frá kirkjunni og byggingu hennar. Áður en lagt verður í hann eru kaffiveitingar á Torginu kl. 15. Brottför er síðan frá Neskirkju kl. 15.20.

By |2009-03-10T15:02:55+00:0010. mars 2009 15:02|

Boðorð 7 og Búkolla

Berðu virðingu fyrir öðrum. Leitastu við að efla fólk og styðja það. Ef við öll temjum okkur svona afstöðu og komum henni í framkvæmd yrði lífið skemmtilegra og traustið myndi setjast að í mannheimum. Það er merking 7. boðorðsins sem Sigurður Árni íhugaði í prédikun 8. mars 2009.

By |2009-03-08T18:27:14+00:008. mars 2009 18:27|

Berðu virðingu fyrir fólki og lífi þess

Sunnudaginn 8. mars verður í Neskirkjumessunni hugað að boðinu: Þú skalt ekki stela. Kór Neskirkju syngur og Steingrímur spilar. Barnastarfið byrjar í kirkjunni. Helgihald hefst kl. 11. Messuhópur: Droplaug, Ingibjörg, Magnús og Sesselja. Prestar Toshiki og Sigurður Árni, sem prédikar. Ari, María, Alexandra og fl. stýra barnastarfinu. Súpa eftir messu.

By |2009-03-06T20:28:02+00:006. mars 2009 20:28|