Skráning er hafin í kórastarf Neskirkju fyrir haustið 2026. Í fyrra komust færri að en vildu – í haust verður boðið upp á kór fyrir 3-5 ára og 6 – 8 ára.

Krílakór Neskirkju er fyrir öll börn fædd 2021-2023 og hefst kórastarfið þann 20. september. Æfingar verða á sunnudögum kl. 10.15 í safnaðarheimilinu.

Barnakórinn er fyrir öll börn fædd 2018-2020 og hefjast æfingar þann 20. september. Æfingar verða á sunnudögum kl. 12. 15 í safnaðarheimilinu. 

Kórstjóri beggja kóranna er Tinna Sigurðardóttir, söngkona og talmeinafræðingur.

Skráning í kórana fer fram hér á ablersíðu Neskirkju.

Þátttökugjaldið er kr. 22.000 og hægt að dreifa í 5 greiðslur.