Fréttir

Messa 30. janúar

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Sigurður S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Andrea, Ari, Katrín og Oddur. Samfélaga og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2016-01-29T12:52:09+00:0029. janúar 2016 12:52|

Kveðjumessa Sigurvins

Sunnudaginn 24. janúar kl. 11.00 er messa í Neskirkju. Þetta er jafnframt kveðjumessa sr. Sigurvins Lárusar Jónssonar sem er á leið í doktorsnám til Árósa í Danmörku. Kór Neskirkju og Stúlknakór syngja. Organisti verður Steingrímur Þórhallsson. Sigurvin prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Skúla Ólafssyni. Og auðvita verður barnastarfið á sínum stað í höndum Andreu, [...]

By |2016-01-20T14:09:15+00:0020. janúar 2016 14:09|

Skátahreyfingin á Íslandi

Krossgötur miðvikudaginn 20. janúar kl. 13:30. Bragi Björnsson skátahöfðingi segir frá þessu merka félagi, skátahreyfingunni í fortíð, nútíð og framtíð. Kaffiveitingar.

By |2016-01-19T13:56:30+00:0019. janúar 2016 13:53|

Hafdís og Klemmi – fjölskylduguðsþjónusta 17. janúar

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Leiksýninginn Hafdís og Klemmi - og leyndardómar háaloftsins verður sýnd. Steingrímur Þórhallsson verður við hljóðfærið. Prestur Sigurvin L. Jónsson. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Sýningin fjallar um ævintýri vinanna tveggja, Hafdís og Klemmi, sem finna dularfullt tæki uppi á háalofti heima hjá ömmu Hafdísar. Umfjöllunarefni sýningarinnar eru hæfileikar. Hverjir hafa hæfileika [...]

By |2016-01-14T12:40:02+00:0014. janúar 2016 12:40|

Krossgötur á nýju ári

Krossgötur miðvikudaginn 13. janúar kl. 13.30. Farsæl öldrun: Árum bætt við lífið og lífið við árin. Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir talar. Kaffiveitingar. Dagskrá fyrir vorið 2016.

By |2016-01-11T11:48:05+00:0011. janúar 2016 11:22|

Áramót

31. des. – gamlárskvöld. Aftansöngur kl. 18.00. Hátíðarsöngvar sungnir. Trompet Baldvin Oddsson. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. 1. jan. – nýársdagur. Hátíðarmessa kl. 14.00. Hátíðarsöngvar sungnir. Einsöngur Fjölnir Ólafsson. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Sigurvin Lárus Jónsson.

By |2015-12-29T10:59:04+00:0029. desember 2015 10:57|

Jólakveðja

Aðventa og jól eru helgur tími ef við opnum hjörtu okkar fyrir anda þeirra. Á aðventu ættum við að leiða hugann að því hvernig við verjum lífi okkar og á jólahátíð fögnum við því undri að Guð vilji eiga hlutdeild í lífi okkar. Helgihald aðventu og jóla miðar að því að miðla þeim boðskap og [...]

By |2015-12-21T09:15:50+00:0021. desember 2015 09:12|

Fjórði sunnudagur í aðventu

Messa og barnastarf sunnudaginn 20. desember kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Stúlknakór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Sigurvin L. Jónsson. Unglingar úr NeDó, æskulýðsfélagi Neskirkju, aðstoða. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katrín, Oddur og Ari. Kaffisopi á Torginu.

By |2015-12-18T16:48:41+00:0018. desember 2015 16:48|

Ljósamessa – þriðji sunnudagur í aðventu

Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð og tendra ljós. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Andrea, Katrín, Oddur og Ari. Seld verða kerti fyrir Hjálparstarf kirkjunnar eftir messu. Samfélag og kaffisopi á Torginu.

By |2015-12-10T09:44:59+00:0010. desember 2015 09:44|

Jólatónleikar Kórs Neskirkju

Fimmtudagskvöldið 10. desember verður blásið til ÓKEYPIS jólatónleika í Neskirkju. Kór Neskirkju, Stúlknakór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur taka þátt í tónleikunum og flytja fyrir gesti tónlist tengda jólum allt frá þekktum jólasálmum eins og „Nóttin var sú ágæt ein“ yfir í verkin „O Magnum Mysterium“ eftir Morten Lauridsen og „Where riches is everlastingly“ eftir Bob [...]

By |2015-12-07T13:45:07+00:007. desember 2015 13:39|