Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Leiksýninginn Hafdís og Klemmi – og leyndardómar háaloftsins verður sýnd. Steingrímur Þórhallsson verður við hljóðfærið. Prestur Sigurvin L. Jónsson. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Sýningin fjallar um ævintýri vinanna tveggja, Hafdís og Klemmi, sem finna dularfullt tæki uppi á háalofti heima hjá ömmu Hafdísar. Umfjöllunarefni sýningarinnar eru hæfileikar. Hverjir hafa hæfileika og hvernig getur maður nýtt hæfileika sína til góðs? Mikið er gert uppúr þátttöku barnanna í áhorfendasalnum.Persónur sýningarinnar eru jafnframt aðalpersónur þáttanna Daginn í dag en sýningin er sjálfstætt framhald þáttanna.