Fréttir

Opið hús

Í Opnu húsi miðvikudaginn 31. október mun Síra Ágúst Sigurðsson, sem nýkominn er úr siglingu, segir frá Efesus og Húsi Maríu meyjar á Næturgalafjallinu og sýnir myndir úr ferðalaginu. Í upphafi er boðið upp á kaffiveitingar á Torginu. Opið hús er alla miðvikudag kl. 15.

By |2007-10-30T10:44:33+00:0030. október 2007 10:44|

B+ og NeDó

Þriðjudaginn 30. október mun æskulýðsfélag Neskirkju og Dómkirkju taka þátt í verkefninu B+ þar sem öll æskulýðsfélög á landinu hjálpast að við að lesa Biblíu 21. aldar á einni viku. Upplesturinn mun hefjast í safnaðarheimili Neskirkju kl 17:00 og standa fram eftir kvöldi. NeDó mun nota tækifærið og safna fyrir utanlandsferð sem fyrirhuguð er í [...]

By |2007-10-29T10:27:38+00:0029. október 2007 10:27|

Sr. Frank prédikar í Neskirkju

Á siðbótardegi, sunnudaginn 28. október mun sr. Frank M. Halldórsson prédika í Neskirkju. Hann er bæði kunnugur prédikunarstólnum og aðstæðum kirkjunnar því hann þjónaði Nessöfnuði í 40 ár. […]

By |2007-10-25T00:00:00+00:0025. október 2007 00:00|

Guðrún Helgadóttir

Í Opnu húsi miðvikudaginn 24. október mun Guðrún Helgadóttir rithöfundur talar um æsku og elli og les úr verkum sínum. Opna húsið byrjar kl. 15. með kaffiveitingum á Torginu. Umsjón með starfinu hefur Hjörtur Pálsson.

By |2007-10-24T09:38:00+00:0024. október 2007 09:38|

Foreldramorgnar

Foreldramorgnar er alla fimmtudaga kl. 10 til 12. Fjörugt samfélag og mörg börn! Spjall, samfélag og gott kaffi.

By |2007-10-24T00:00:00+00:0024. október 2007 00:00|

NeDó á Landsmóti ÆSKÞ 19.-21. október

Nú á sunnudaginn lauk landsmóti æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) en um helgina hittumst rúmlega þrjúhundruð unglingar á aldrinum 13 ára til 18 ára ásamt leiðtogum á Hvammstanga. NeDó, æskulýðsfélag kirkjunnar, var þar með hóp af ungmennum sem sýndu kirkjunni mikinn sóma með hátterni sínu en svo vel gekk mótið að hvergi bar skugga á og gleðin [...]

By |2007-10-22T16:52:13+00:0022. október 2007 16:52|

Messa 20. okt. kl. 11 – Fögnum nýrri Biblíu!

Messan hefst með því að tekin verður í notkun ný Biblía með viðhöfn. Fermingarbörn bera inn ljós og nýju Biblíuna. Barnastarf á sama tíma í umsjá Bjargar Jónsdóttur. Félagar úr Háskólakórnum leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, organista. Meðhjálpari Úrsúla Árnadóttir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall á Torginu [...]

By |2007-10-18T11:46:25+00:0018. október 2007 11:46|

Biskupsheimsókn í myndum

Þegar biskup sækir söfnuð heim vísiterar hann. Herra Karl Sigurbjörnsson vitjaði Nessafnaðar í byrjun október. Nokkrar myndir frá vísitasíu, m.a. af fundum sem biskup sat eða tók þátt í eru undir þessari smellu.

By |2007-10-17T12:46:41+00:0017. október 2007 12:46|

Bæn og messa

Á miðvikudögum eru fyrirbænamessur í Neskirkju kl. 12.15. Beðið er fyrir lífinu, gleðinni, sjúkum og bágstöddum. Messan, þ.m.t. altarisgangan, tekur um 20 mínútur. Hægt er að koma fyrirbænarefnum til prestanna með tölvupósti, símtali eða skriflega við upphaf messunnar.

By |2007-10-17T09:00:49+00:0017. október 2007 09:00|

Blómlegt unglingastarf í Neskirkju

Í Neskirkju er blómlegt unglingastarf en kirkjan er ásamt Dómkirkju á leiðinni til Hvammstanga á landsmót æskulýðsfélaga í Þjóðkirkjunni. Þar koma til með að hittast mörg hundruð ungmenni af öllu landinu til að eiga góða stund saman og fræðast um Biblíuna og kristna trú. Á vegum NeDó unglingastarfs Nes- og Dómkirkju fara tæplega 20 ungmenni [...]

By |2007-10-16T17:58:53+00:0016. október 2007 17:58|