Nói og frú
Kæra Hafdís HuldOkkur í Krakkaklúbbnum finnst lagið þitt Nói og frú af geisladisknum Englar í Ullarsokknum skemmtilegt og því ákváðum við að gera tónlistarmyndband við lagið. Njótið vel. Kv. Krakkaklúbbur Neskirkju
Kæra Hafdís HuldOkkur í Krakkaklúbbnum finnst lagið þitt Nói og frú af geisladisknum Englar í Ullarsokknum skemmtilegt og því ákváðum við að gera tónlistarmyndband við lagið. Njótið vel. Kv. Krakkaklúbbur Neskirkju
"Ljósið að handan lýsti upp jörð, filmu og hans eigið líf. Hann var í ljósför sjálfur, en uppgötvaði svo að hann sjálfur var upplýstur og framkallaður." Hugleiðing Sigurðar Árna í messunni 12. apríl 2008 var um plúsana í trú og kirkju og er á bak við þessa smellu.
Messa og barnastarf næsta sunnudag kl. 11 í Neskirkju. Messuhópur þjónar í messunni. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari og prédikar um plúsana í trú og kirkju. […]
Messa og barnastarf sunnudaginn 6. apríl kl.11. Fullorðins- og barnaskírn. Sr. Paul Teske, lútherskur prestur frá Connecticut í BNA flytur vitnisburð. Sr. Örn Bárður prédikar og þjónar fyrir altari. Myndrænir og sterkir prédikunartextar. […]
Á foreldramorgni fimmtudaginn 3. apríl mun Guðrún Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur fjalla um lífsleikninámsefnið Vinir Zippy's. Vinir Zippy's er alþjóðlegt námsefni sem er ætlað að efla geðheilbrigði 6-7 ára barna og hefur verið notað með góðum árangri víða um heim. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10.
Þolir trú nokkuð efa? Er það ekki markmið trúmannsins að útrýma efanum? Eða eigum við kannski að efast um slíkan efa? Prédikun sr. Sigurðar Árna 30. mars var um Tómas, Kant og efann í trúnni. Smelltu hér til að nálgast prédikunina.
Hugvekju sr. Arnar Bárðar sem flutt var við fermingarmessu 30.mars er hægt að hlusta á hér.
„Þorðu að hugsa“ skrifaði heimspekingurinn Immanuel Kant í frægri ritgerð. Tómas postuli hugsaði sitt og efaðist. Hann mætti Jesú og þorði að endurskoða allar sínar hugmyndir. Á fyrsta sunnudegi eftir páska verður í messunni hugað að trú, efa og tengslum þeirra í samtíð okkar. Athöfnin hefst kl. 11 og barnastarfið hefst í kirkjunni. Allir velkomnir, [...]
Á krossinum sagði hinn þjáði: Það er fullkomnað! En í reynd var hann segja: Nú byrjar allt! Úr prédikun sr. Arnar Bárðar á páskadag sem lesa má í heild og hlusta á hér:
Stuð eða tilfinningarlegur mínus gerir ekki útslagið í lífinu, ekki jákvæðni eða neikvæðni. Ertu í hópi föstudagsfólks eða sunnudagsfólks? Hver er frumforsendan? Páskaprédikun sr. Sigurðar Árna er undir þessari smellu.