Á foreldramorgni fimmtudaginn 3. apríl mun Guðrún Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur fjalla um lífsleikninámsefnið Vinir Zippy’s. Vinir Zippy’s er alþjóðlegt námsefni sem er ætlað að efla geðheilbrigði 6-7 ára barna og hefur verið notað með góðum árangri víða um heim. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10.