Opið hús miðvikudaginn 7. nóvember
Opið hús kl. 15.00. Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða kemur í heimsókn og ræðir um samband kynslóðanna. Kaffiveitingar í upphafi.
Opið hús kl. 15.00. Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður stofnunar Sæmundar fróða kemur í heimsókn og ræðir um samband kynslóðanna. Kaffiveitingar í upphafi.
Einelti er alvarlegt og aðkallandi vandamál meðal íslenskra ungmenna en einelti meðal barna og unglinga er afleiðing af þeirri valda- og ofbeldismenningu sem við búum við í samfélagi fullorðinna. Einelti er ekki síður stórt vandamál á vinnustöðum og í félagasamtökum fullorðinna og þar er vandinn mikið til falinn. Prédikun Sigurvins L. Jónssonar sunnudaginn 4. nóvember [...]
Messa sunnudaginn 4. nóvember kl. 11 í Neskirkju. Þema messunnar er einelti og afleiðingar þess. Stúlknakór Neskirkju leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Sr. Sigurður Árni Þórðarsson þjónar fyrir altari og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar. Stöndum saman, með lífinu og gegn einelti.
Hani Pílatusar er frægasti hani veraldar. En hæna Heródesar er síður kunn en hefur örgglega verið matreidd með kúnst fagurkerans. Hér er uppskrift að tilgátu-Heródesarkjúkling, sem verður eldaður í Neskirkju 2. nóvember og hefst máltíðin kl. 12 með kynningu og bæn. Föstudagar eru biblíumatardagar í Neskirkju. […]
Á föstudögum er biblíumatur eldaður í Neskirkju. Reyndar voru tæplega tíu kg. af nautakjöti steikt og sett síðan í kryddblöndu þegar á fimmtudegi – til að marinera kjötið vel. Á borðum 26. október verður máltíð af því tagi sem gæti hafa verið elduð þegar týnda syninum var fagnað. Allir eru velkomnir í ilmandi og bragðgóðan [...]
Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Halla Rut og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Leigubílstjórinn sofnaði, bensínfóturinn seig og skyndilega var bíllinn kominn upp í 150. Íslenskir þingmenn, ökumaður og starfsmaður Alþingis í bráðri lífshættu. Hver og hvað bjargar á slíkri reisu? Eru englar meðal manna? Prédikun í Neskirkju 21. október - bæði texti og hljóðskrá - er að baki þessari smellu.
Opið hús miðvikudaginn 24. október kl. 15. Oddrún Kristjánsdóttir, umhverfisfræðingur og framkvæmdarstjóri fjallar um Rauða korssin í Reykjavík. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Helgihald í Neskirkju sunnudaginn 21. október verður fjölbreytilegt. Messa og barnastarf verða að venju kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sigurður Árni prédikar og þjónar fyrir altari og ræðir um ferðalög og lífsleiðir. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. [...]
Biblíumatur verður á borðum í Neskirkju næstu föstudagshádegi og matarmenning biblíutímans kynnt. Föstudaginn 19. október verður eldaður lambakjötsréttur úr biblíulegri konungsveislu. Kynning og borðbæn kl. 12. Biblían þjónar lífinu og það er aukabónus að þessi matur er heilsufæði og bragðgóður! Allir velkomnir og það vænlegra að koma rétt fyrir kl. 12 því reglan er að [...]