Biblíumatur verður á borðum í Neskirkju næstu föstudagshádegi og matarmenning biblíutímans kynnt. Föstudaginn 19. október verður eldaður lambakjötsréttur úr biblíulegri konungsveislu. Kynning og borðbæn kl. 12. Biblían þjónar lífinu og það er aukabónus að þessi matur er heilsufæði og bragðgóður! Allir velkomnir og það vænlegra að koma rétt fyrir kl. 12 því reglan er að fyrstir koma – fyrstir fá.