Fréttir

Skáldað í byggingararfinn

Krossgötur miðvikudaginn 5. febrúar kl. 13.3o. Hvers vegna byggja menn tilgátuhús eins og Þjóðveldisbæ í Þjórsárdal? Guðrún Harðardóttir sagnfræðingur við húsasafn Þjóðminjasafns talar um  tilraunir manna til að endurgera fornar byggingar. Kaffiveitingar.

By |2014-02-04T11:12:20+00:004. febrúar 2014 11:12|

Messa 2. febrúar

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Bjarni Jónatansson. Messuþjónar aðstoða. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og léttar veitingar á Torginu eftir messu.

By |2014-01-30T10:42:40+00:0030. janúar 2014 10:42|

Stýring

Krossgötur miðvikudaginn 29. janúar kl. 13.30. Geir Guðsteinsson, ritstjóri Vesturbæjarblaðsins segir frá blaðinu og vinnunni í kringum það. Kaffiveitingar.

By |2014-01-28T14:15:27+00:0028. janúar 2014 14:15|

Messa 26. janúar

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt með sr. Toshiki Thoma. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |2014-01-23T10:28:44+00:0023. janúar 2014 10:28|

Hefur þú áhuga á kyrrð? En kyrrðardegi?

Kyrrðardagur Neskirkju verður laugardaginn 25. janúar kl. 10-15.30. Kyrrðardagur er dekurdagur sálarinnar og hentar öllum, sem hafa áhuga á tilgangi eigin lífs, slökun og trú. Þau sem vilja rækta sinni innri mann og efla andlega heilbrigði eru velkomin. Íhuganir, bænir og tvær gönguferðir verða á dagskrá. Gerið svo vel að skrá ykkur með því að [...]

By |2017-04-26T12:23:22+00:0021. janúar 2014 21:08|

Persónuleg stefnumótun

Krossgötur miðvikudaginn 22. janúar kl. 13.30. Hvert var leyndarmál Gunnars Thoroddsens? Af hverju náði hann sem næst öllum markmiðum sínum? Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur og markþjálfi, opinberar leyndarmálið. Kaffiveitingar.

By |2017-04-26T12:23:22+00:0021. janúar 2014 11:08|

Meira vín? Messa 19. janúar

Ræðu Arnar Bárðar er hægt að nálgast hér. Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |2017-04-26T12:23:22+00:0016. janúar 2014 15:40|

Nýtt föstunámskeið Neskirkju – nokkur pláss laus

Viltu breyta og viltu lifa orkumeira lífi. Já, margir velja nýjan lífsstíl á nýju ári? Fullbókað er á janúarföstu Neskirkju sem nú er hafin og margir komust ekki að. Því var ákveðið að bjóða til nýs föstunámskeiðs og hefst það sunnudaginn 25. febrúar. Hjónin, Elín Sigrún Jónsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson, stýra þessari föstu í [...]

By |2017-04-26T12:23:22+00:0016. janúar 2014 11:19|

Foreldramorgnar

Foreldramorgnar eru byrjaðir aftur eftir jólafrí. Foreldramorgnar eru í umsjón Nínu Agnarsdóttur og eru alla fimmtudaga frá kl. 10-12. Næsta fimmtudag er á dagskrá kaffi og spjall. Allir foreldrar hjartanlega velkomnir !

By |2014-01-14T17:51:21+00:0014. janúar 2014 17:51|

Hver er fatlaður og hver ekki?

Miðvikudaginn 15. janúar kl. 13.30 koma góðir gestir á Krossgötur - opið hús til að fræða og svara spurningum. Fötlunarfræði. Snæfríður Þórdís Egilson, prófessor í fötlunarfræðum og Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent í sömu grein, koma og ræða um sitt fag. Hvað er fötlun? Hverjir eru fatlaðir? Hverjir eru ekki fatlaðir? Krossgötur eru handa öllum sem [...]

By |2017-04-26T12:23:23+00:0014. janúar 2014 11:38|